Auka Aðalfundur 2022
þriðjudaginn 15. feb
Kl. 15:00-17:00
Borgartún 35
Félagsmenn athugið!
Auka Aðalfundur Bílgreinasambandsins verður haldinn þriðjudaginn 15 febrúar næstkomandi og hefst kl. 15:00 í Húsi Atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Fundarsalur er Hylur á 1. hæð hússins.
Fundurinn er einungis ætlaður félagsmönnum og starfsfólki þeirra og er nauðsynlegt að skrá sig á fundinn. Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta en skráning fer fram hér á heimasíðu Bílgreinasambandsins.
Dagskrá fundar:
- Kynning á tillögu stjórnar Bílgreinasambandsins um sameiningu Bílgreinasambandsins og SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu
- Atkvæðagreiðsla um staðfestingu aukaaðalfundar á samkomulagi stjórna Bílgreinasambandsins og SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu um sameiningu samtakanna
- Atkvæðagreiðsla um tillögu stjórnar Bílgreinasambandsins um sameiningu Bílgreinasambandsins og SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu
- Atkvæðagreiðsla um tillögu stjórnar Bílgreinasambandsins um nýjar samþykktir Bílgreinasambandsins.
Önnur mál
Við vonumst til að sjá sem flesta. Skráið ykkur með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.