Fara í efni

Volvo XC40 Recharge frumsýndur

Brimborg frumsýnir nýjan Volvo XC40 Recharge tengiltvinn 22. febrúar.

Volvo er í fararbroddi rafhlaðinna bíla og kynnir nú til sögunnar Volvo XC40 Recharge, nýjan rafhlaðinn tengiltvinnbíl.  Volvo hefur sett metnaðarfull markmið fyrir framtíðina sem er að vera kolefnishlutlausir 2040.

Volvo XC40 hefur fengið einstakt lof um allan heim fyrir einstaka hönnun að utan sem innan síðan hann kom á markað í fjórhjóladrifs dísilútgáfu og var meðal annars valinn bíll ársins í Evrópu 2019. Nú kynnir Brimborg hann í nýrri framdrifinni rafhlaðinni tengiltvinnútgáfu. Bíllinn sem þú treystir til að vernda fjölskylduna verndar nú umhverfið líka.

Volvo XC40 Recharge er vel búinn, öruggur bíll fyrir þá sem vilja stíga inn í rafmagnaða og umhverfisvæna framtíð án þess að hafa áhyggur af drægni og gæðum. Glæsilegur rafmagnaður bíll með miklu rými. Hann leysir helsta vandamál rafmagnsbílana sem enn eru takmarkaðir í drægni. Öflug og skilvirk akstursupplifun þar sem þú kemst um á rafmagninu einu í venjulegri daglegri notkun en hefur síðan bensínið til að komast í lengri ferðir án þess að þurfa að hlaða.

Helstu tölur fyrir Volvo XC40 Recharge Plug-in Hybrid:
★ Rafmagnaður, rúmgóður, framdrifinn tengiltvinnbíll
★ Stuttur hleðslutími rafhlöðu heima eða í vinnu
★ Kraftmikill með 262 hestöfl í heild
★ Nægt rafmagn í 53 km. Dugar i venjulega daglega notkun
★ Meðaleyðsla bensíns 2,0 l/100 km
★ Verndar umhverfið með undir 47 g/km. í CO2 losun
★ Dráttargeta 1.800 kg. fyrir eftirvagn með hemlum
★ Veghæð mikil eða 21,1 cm.
★ 7 þrepa sjálfskipting
★ Ríkulegur staðalbúnaður

Mæligildi skv. WLTP staðli ESB.

Volvo XC40 Recharge Plug-in Hybrid
verð frá 5.190.000 kr.