Fara í efni

Subaru Forester e-Boxer hybrid frumsýndur

Nýr, stærri og rúmbetri Subaru Forester með sparneytinni e-Boxer Hybrid véltækni, verður kynntur hjá BL við Sævarhöfða á morgun, laugardaginn 18. janúar milli kl 12 og 16. Forester er fyrsti bíll Subaru með þessari tækni þar sem tveggja lítra 150 hestafla bensínboxervél og 12 hestafla rafmótor við 118V rafgeymi koma saman og gera ökumanni kleift að aka bílnum vissa vegalengd eingöngu á rafmótornum áður en aðalvélin ræsist til aðstoðar. Tæknin dregur úr eldsneytisnotkun og mengandi útblæstri og veitir sérlega þægilegan og þýðan akstur í þéttbýli. Öll hönnun varðandi fyrirkomulag og staðsetningu nýju véltækninnar tryggir sem fyrr lágan og dreifðan þyngdarpunkt fyrir hámarks stöðugleika og öryggi í akstri sem eru meðal helstu aðalsmerkja Subaru.

Stærri, rúmbetri og enn öruggari

Subaru Forester e-Boxer Hybrid er lengri og breiðari en fráfarandi Forester auk þess sem lengra er á milli fram- og afturhjóla. Rými fyrir ökumann, farþega og farangur er því meira en áður og sætin breiðari og þægilegri. Þá hefur Forester heldur aldrei verið jafn ríkulega búinn öryggis-, aðstoðar- og þægindabúnaði og nú eins og hægt er að kynna sér í verðlista á bl.is. Á öryggis- og aðstoðarsviði gegnir hið margverðlaunaða EyeSight lykilhlutverki þar sem Subaru bætir sífellt nýjum eiginleikum við og hefur Forester aldrei verið jafn öruggur og nú, enda t.d. með rafstýrða hjálparhemlun, akreinavara, akreinastýringu, skynvæddan hraðastilli og bakkvörn sem eru meðal rómaðra eiginleika EyeSight. Bakkvörnin byggir á fjórum skynjurum á afturstuðara og getur EyeSight stöðvað bílinn sjálfkrafa sé hann kominn of nálægt t.d. vegg eða manneskju fyrir aftan bílinn. Þá er EyeSight ennfremur búið þeirri nýjung að fylgjast með athygli ökumannsins með andlitsgreiningartækni sem lætur hann vita skynji öryggiskerfið þverrandi athygli við aksturinn.

Þrjár útgáfur í boði

Subaru Forester e-Boxer Hybrid er boðinn í þremur útgáfum; grunngerðinni Premium sem er sérlega vel útbúin á öllum sviðum og kostar frá 6.890 þúsundum króna, auk dýrari útgáfanna LUX og LUX+. Hægt er að velja um ýmsan aukabúnaðar með nýjum Forester, svo sem skíðaboga, dráttarbeisli, hlíf undir vél og afturdrif svo nokkuð sé nefnt.

„Bestur í sínum flokki“ hjá Euro NCAP

Nýr Forester fékk í desember fullt hús öryggisstiga í árekstra- og öryggisprófunum Euro NCAP fyrir framúrskarandi alhliða öryggi, þar á meðal fyrir börn og fullorðna farþega, gangandi vegfarendur og fyrir öryggiskerfið EyeSight, sem veitt getur ökumanni margvíslega aðstoð í akstri. Í öllum flokkum voru einkunnir vel yfir því lágmarki sem þarf til að hljóta 5 stjörnur í prófunum Euro NCAP og er heildareinkunnin sú hæsta sem Forester hefur hlotið frá upphafi. Auk þessarar 1. einkunnar útnefndi Euro NCAP í byrjun janúar hinn nýja Forester

þann besta í sínum flokki 2019 (Best in class 2019 Small Off-Road/MPV). Forester hefur einnig hlotið hæstu öryggiseinkunn hjá Umferðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (IIHS) auk Grand Prix-verðlauna Japan New Car Assessment Programm fyrir framúrskarandi alhliða öryggi.

Subaru Forester e-Boxer

https://www.youtube.com/watch?v=X5Vf_d9TesA