Fara í efni

Nýr Kia Niro Plug-in Hybrid frumsýndur

Nýr Kia Niro Plug-in Hybrid verður frumsýndur í Kia húsinu að Krókhálsi 13 nk. laugardag kl. 12-16.

Hinn nýi Kia Niro er fallega hannaður borgarjepplingur eða crossover. Bíllinn kemur nú með nokkuð  breyttu útliti en straumlínulagaðar, skarpar og nútímalegar formlínur eru áberandi í hönnuninni. Að framan er Niro með ættarmerki Kia sem er Tiger nose grillið og fallega hönnuð LED framljós. Innanrýmið er vel hannað og rúmgott. Há seta farþega gerir alla umgengi um bílinn mjög þægilega og útsýni úr bílnum er mjög gott. Þægindi og tækni eru í fyrirrúmi í innanrýminu á Niro og nýi tengiltvinnbíllinn er fáanlegur með 10,25" margmiðlunarskjá.

Nýr Kia Niro Plug-in Hybrid er með tengiltvinnvél með rafmótor og bensínvél. Bíllinn er með 58 km drægni á rafmagninu eingöngu. Kia Niro er vinsælasti bíll Kia á Íslandi ef miðað er við sölu til almennings. Kia Niro er fáanlegur sem Plug-in Hybrid, hreinn rafbíll og sem Hybrid bíll knúinn rafmótor og 1,6 lítra bensínvél. Þessi valmöguleiki á aflgjöfum á einum og sama bílnum er einstakur á bílamarkaðnum.

Bíllinn er vel búinn öllum nýjustu tækni og er m.a. með akreinavara, íslensku leiðsögukerfi og margt fleira. Nýr Kia Niro er með 7 ára verksmiðjuábyrgð eins og allir nýir Kia bílar.