Fara í efni

Mazda MX-30: 100% rafbíll frumsýndur

Rafbíllinn Mazda MX-30 verður forsýndur hjá Brimborg laugardaginn 26. september.

Nýr Mazda MX-30 er 100% hreinn rafbíll með ríkulegum staðalbúnaði t.a.m bakkmyndavél, forhitun sem tryggir alltaf heitan bíl, vegaleiðsögn, 18“ álfelgum og innbyggðri varmadælu ásamt víðtækri 5 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Við hönnun bílsins lagði Mazda mikla áherslu á að lækka mengunarfótspor rafbílsins allan líftíma bílsins, við framleiðslu, notkun og förgun.

Mazda MX-30 kostar frá 3.980.000 kr. og fæst með grænni fjármögnun og 30% útborgun fyrir aðeins 32.967 kr. á mánuði. Auk þeirra þæginda sem heimahleðsla býður upp á má spara allt að 16.000 kr. á mánuði með því að keyra á íslenskri orku í samanburði við meðalstóran bensínbíl.

Á forsýningunni verður í boði ráðgjöf við kaup og uppsetningu hleðslustöðva, kynning á ívilnunum sem eru í boði fyrir hleðslustöðvar og fjármögnun þeirra.

Forsýningin er í sýningarsal Mazda að Bíldshöfða 8 frá kl. 12-16.

Nánari upplýsingar um Mazda MX-30 100% rafbíl er að finna á vef Mazda á Íslandi eða hjá sölustjóra Mazda á Íslandi | Brimborg, Benný Ósk Harðardóttur @Benný Ósk Harðardóttir eða í síma 5157802.

Smelltu hér til að kynna þér allt um Mazda MX-30 100% rafbíl.