Fara í efni

Glæsileg Jeep og RAM sýning

ÍSBAND, umboðsaðili JEEP og RAM, á Íslandi býður til stórglæsilegrar jeppa- og pallbílasýningar laugardaginn 6. júní. Sýndir verða óbreyttir og breyttir Jeep jeppar og RAM pallbílar.

Jeep Grand Cherokee verður m.a. sýndur með 33” og 35” breytingum og Jeep Wrangler Rubicon verður sýndur með 35”, 37” og 40” breytingum. RAM pallbílar verða til sýnis með 37” og 40” breytingum.

Þjónustuverkstæði ÍSBAND sérhæfir sig í breytingum á Jeep og RAM, en ÍSBAND er með umboð fyrir hin virtu amerísku breytingar fyrirtæki AEV, sem sérhæfir sig í breytingum á RAM og TeraFlex, sem sérhæfir sig í breytingum á Jeep.

Rjúkandi heitt Lavaza kaffi verður á könnunni og gos og snakk frá Ölgerðinni og Danól. Sýningin er í sýningarsal ÍSBAND í Þverholti 6 Mosfellsbæ og er opin á milli kl. 12-16.