Fara í efni

Frumsýning á fyrsta rafbíl MINI

BL við Sævarhöfða kynnir á morgun, laugardag milli kl. 12 og 16, rafbílinn MINI Cooper SE sem er rafknúin útgáfa MINI Cooper S og fyrsti rafbíll framleiðandans. Þessi nýi rafbíll er framdrifinn, þriggja dyra borgarbíll með 184 hestafla rafmótor sem skilar honum á rúmum sjö sekúndum úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Rafhlaðan er 33 kW sem skilar 270 Nm togi og er drægi bílsins um 233 km samkvæmt mælistaðlinum WLTP.

Ekta MINI og jafnvel meira en það

MINI Cooper SE nýtur fjölmargra tæknilausna og reynslu frá móðurfyrirtækinu BMW. Í umsögnum bílablaðamanna er bíllinn jafnvel talinn enn skemmtilegri í akstri en spegilmyndin, Cooper S. Þyngdarpunkturinn er t.a.m. enn lægri en í S-útgáfunni vegna rafhlöðunnar sem staðsett er neðst í undirvagninum. Það hefur verið sagt um rafbíla að þeir séu skemmtilegri í akstri en bílar með hefðbundnum vélum og það á sannarlega við um þennan nýja rafdrifna borgarbíl því aflið (togið) skilar sér nánast samstundis til hjólanna og gerir MINI Cooper SE einstaklega snarpan og lipran í akstri.

Þrjú útbúnaðarstig S, M og L

MINI SE er fáanlegur í þremur útbúnaðarútfærslum; S, M og L og er grunnverðið frá 3.980 þúsundum króna. Grunnútgáfan S er vel búin staðalbúnaði á borð við regnskynjara, 6,5“ snertiskjá, fjarlægðarskynjara að aftan, rafdrifna og upphitaða hliðarspegla, LED ljós að framan og aftan og einnig í stöðu- og aðkomuljósum (Follow me home) svo fátt eitt sé nefnt. Í dýrari gerðunum M og L er m.a. að finna búnað á borð við íslenskt leiðsögukerfi, stærri álfelgur, akstursaðstoðarkerfi, bakkmyndavél og sjálfvirkni sem leggur bílnum í stæði.

Mismunandi akstursstillingar

Allar gerðir MINI SE eru búnar fjórum mismunandi akstursstillingum; Sport, Mid, Green og Green+ sem gera ökumanni kleift að stjórna nýtingu orku frá rafhlöðunni og annað hvort auka drægi bílsins með því að spara orku eða njóta aksturseiginleikanna til hins ítrasta með aukinni orkunotkun í Sportstillingunni. Allar nánari upplýsingar um nýjan rafdrifinn MINI Cooper SE má nálgast á vefsíðunni mini.is hjá BL.