Fara í efni

FRESTAÐ - Frumsýning á Citroen C5 Aircross tengiltvinn

ATH! Vegna væntra hertra sóttvarnartakmarkana hefur þessum viðburði verið frestað um óákveðinn tíma.

 

Citroën C5 Aircross PHEV er glænýr tengiltvinn rafbíll, langdrægur á rafmagni og einstaklega sparneytinn á bensíni sem hentar vel í langkeyrslur með alla fjölskylduna og fullt af farangri.

Citroën C5 Aircross verður frumsýndur laugardaginn 31. október hjá Brimborg Reykjavík og Brimborg Akureyri. Lögð verður áhersla á sóttvarnir með 2 metra reglunni og hámark 20 manns í sýningarsölum samtímis.

Íslenskar aðstæður vefjast ekki fyrir nýja Citroën C5 Aircross PHEV en háfættur svífur hann 23 sentimetrum yfir ójöfnur íslenskra vega á byltingarkenndri fjöðrun. Hábyggt jeppalagið og há sætisstaða skapa þægilegt aðgengi og þegar inn er komið blasir við notendavænt, rúmgott innra rými með breiðum, mjúkum framsætum og þremur, stökum, jafnbreiðum aftursætum. Aftursætin eru á sleða og rúma auðveldlega þrjá barnastóla. Farangursrýmið er 460-600 lítrar, það stærsta í þessum flokki bíla og rúmar auðveldlega golfsettið eða barnavagn auk annars farangurs. Staðalbúnaður er ríkulegur og má þar nefna bakkmyndavél, GPS vegaleiðsögn og lyklalaust aðgengi.

Brimborg býður Citroën C5 Aircross PHEV á einstaklega hagstæðu kynningarverði eða aðeins frá 5.490.000 kr. Brimborg býður bílaskipti úr eldri bíl upp í nýjan Citroën C5 Aircross PHEV sem gildir sem útborgun og með hagstæðri grænni fjármögnun á lægri vöxtum eða lægra lántökugjaldi er mánaðargreiðslan aðeins 49.977 kr. á mánuði. Mánaðargreiðslan í þessu dæmi miðast við uppítöku á eldri bíl á 2.000.000 kr. og 8 ára lán og er hlutfallstala kostnaðar í þessu dæmi 5,66%. Hleðslustöð er auðvelt að fjármagna með bílakaupunum og fæst virðisaukaskattur endurgreiddur bæði af hleðslustöðinni og uppsetningu hennar.

Örugg gæði Citroën C5 Aircross PHEV eru staðfest með víðtækri 5 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda hvað varðar þjónustuskoðanir.

Nánari upplýsingar um tengiltvinn rafbílinn Citroën C5 Aircross PHEV er að finna á vef Citroën á Íslandi | Brimborg eða hjá sölustjóra Citroën á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur @Benný Ósk Harðardóttir eða í síma 515 7802.