Fara í efni

Bílasýning Ísband

ISBAND bílaumboð í Mosfellsbæ umboðsaðili Jeep, RAM og Fiat á Íslandi, blæs til glæsilegrar bílasýningar laugardaginn 2. apríl n.k. Frá Jeep verða öflugu rafknúnu plug-in-hybrid jepparnir til sýnis. Jeep Renegade 4xe verður sýndur í Trailhawk útfærslu og Jeep Compass 4xe í Limited, Trailhawk og S útfærslu. Alvöru jeppar með alvöru fjórhjóladrifi, lágt drif og troðfullir af aukabúnaði. Framundan er 480.000 kr. hækkun á þessum bílum vegna niðurfellingar á virðisaukaskatti og því nú tilvalið að skella sér á nýjan Jeep Renegade eða Jeep Compass.

Goðsögnin Jeep Wrangler Rubicon 4xe plug-in-hybrid sem svo sannarlega hefur slegið í gegn verður einnig til sýnis og þá verður hann sýndur með 35”, 37” og 40” breytingapökkum. Jeppunum er breytt af breytingaverkstæði íSBAND . Stórglæsilegir og öflugir jeppar hér á ferð sem vert er að skoða.

RAM 3500 pallbíll með 40” breytingu verður á sýningunni, en ÍSBAND býður upp á 37” og 40” breytingapakka á RAM. Þá verður einnig sýndur 40” breyttur RAM 3500 björgunarsveitarbíll.

Loks verður að finna á sýningunni fallegasta 100% rafknúna smábílinn Fiat 500e í LaPrima 3+1 útfærslu. 42kw öflug rafhlaða með allt að 433 km drægni. Ítölsk hönnun eins og hún gerist best. Mjög vel útbúinn smábíll með fullkomnu akstursaðstoðarkerfi sem í dag er aðeins er að finna í mun stærri og dýrari bifreiðum á markaðnum í dag.

Boðið verður upp á ítalskt Lavazza eðalkaffi frá Danól og gos og snakk frá Ölgerðinni.

Sýningin er í sýningarsal ÍSBAND að Þverholti 6 í Mosfellbæ og er opin frá kl. 12-16.