Fara í efni

YFIR 300% SÖLUAUKNING Á OUTLANDER PHEV – HELMINGUR ALLRA RAFMAGNSBÍLA FRÁ HEKLU

Fréttir

328% söluaukning varð á Mitsubishi Outlander PHEV fyrstu sex mánuði þessa árs borið saman við sama tímabil í fyrra og er óhætt að fullyrða að Mitsubishi hafi enn og aftur slegið í gegn hjá Íslendingum.

Mitsubishi Outlander PHEV er einn af þeim bílum sem seldir eru á 100 ára afmælistilboði Mitsubishi en um er að ræða vistvænan tengiltvinnbíll sem gengur fyrir bæði rafmagni og bensíni og hefur notið gríðarlega vinsælda hér á landi. Fyrstu sex mánuði ársins seldust 227 eintök af Outlander PHEV sem er 328% fjölgun frá sama tímabili 2016.

Reyndar er einn af hverjum fjórum rafbílum sem seldust á fyrstu sjö mánuðum ársins af gerðinni Outlander PHEV og tæplega helmingur allra nýskráðra rafmagns- og tengiltvinnbíla koma frá HEKLU.

Það hefur verið gaman að fylgjast með endurkomu Mitsubishi síðustu misserin en þessir bílar hafa alltaf átt pláss í hjarta Íslendinga sem kunna að meta gæði og gott verð. Nú í kringum 100 ára afmælið  er þetta enn skemmtilegra að sjá,“ segir Haraldur Ársælsson, vörustjóri Mitsubishi.

Þrír af hverjum fimm nýskráðum vistvænum bílum eru bílar frá HEKLU sem enn sannar yfirburði sína sem það bílaumboð sem býður ekki bara upp á flestar tegundir vistvænna bíla, heldur jafnframt þá vinælustu segir í fréttatilkynningu frá Heklu hf.