Fara í efni

Volvo vöru- og flutningabílar vinsælastir og Volvo FH16 mest selda einstaka gerðin

Fréttir

Volvo vöru- og flutningabílar tróna á toppnum á Íslandi fyrstu sjö mánuði ársins með 33,7% hlutdeild og 28 nýja selda vörubíla yfir 10 tonn og er söluaukning Volvo á vörubílamarkaði yfir 200%. Í flokki vöru- og flutningabíla yfir 16 tonn er Volvo með 24 bíla og er Volvo FH16 mest seldi vöru- og flutningabíllinn af einstökum gerðum enda þrautreyndur við íslenskar aðstæður.

Heildarmarkaður fyrir vörubíla yfir 10 tonn fyrstu sjö mánuði ársins er 83 bílar og er það aukning frá sama tíma í fyrra um 40,7%. Sala Volvo vöru- og flutningabíla vex því mun hraðar en markaðurinn og eykur Volvo því hlutdeild sína umtalsvert á vörubílamarkaði.

Með nýrri gerð Volvo vöru- og flutningabíla ásamt framúrskarandi þjónustu í nýrri þjónustumiðstöð Veltis á Hádegismóum hefur eftirspurn eftir Volvo vörubílum aukist mjög og er pantanastaða Veltis á Volvo vörubílum það sem eftir er árs mjög sterk.

 

Uppitími er meginmarkmið þjónustumiðstöðvar Veltis

Rekstraraðilar leggja leggja megináherslu á uppitíma enda skiptir höfuðmáli að atvinnubílar og atvinnutæki séu alltaf til reiðu í vinnu. Framúrskarandi uppitími veltur á fjórum þáttum þ.e. gæðum tækjanna, afkastagetu og tækjabúnaði þjónustumiðstöðvar, framúrskarandi varahlutaþjónustu og þekkingu og reynslu starfsmanna þjónustumiðstöðvar.

Veltir flutti í nýja 4000 fermetra þjónustumiðstöð í lok árs 2018 með þrautreyndan hóp fagmanna þar sem allt er á einum stað með framúrskarandi aðgengi og athafnasvæði. Ný þjónustumiðstöð með besta mögulega tækjabúnaði hefur aukið afkastagetu og tryggt aukna þjónustu, framúrskarandi varahlutaþjónustu og þjónustuframboð sem hefur leitt til forystu á markaði fyrir atvinnbíla og atvinnutæki.

Efnahagslífið er að taka mjög hressilega við sér um þessar mundir sem er að skila sér í mikilli aukningu á eftirspurn eftir atvinnubílum og atvinnutækjum. Það hefur leitt til þess að pantanastaða Veltis fyrir nýja atvinnubíla og atvinnutæki er mjög sterk sem mun tryggja umtalsverðan vöxt einnig á seinni hluta ársins.

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er umboðsaðili Volvo vörubíla, Volvo vinnuvéla, Volvo rúta og strætisvagna og Volvo Penta bátavéla.

Framleiðandi

2021

Hlutdeild

Volvo

28

33,7%

Scania

24

28,9%

Mercedes Benz

15

18,1%

Man

14

16,9%

Iveco

2

2,4%

Vörubílar alls

83

 

 

Allar nánanir upplýsingar veitir Marteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri Veltis í netfang marteinn@veltir.is eða 5109101