Fara í efni

Vinnustaðanám - tímabundið úrræði stjórnvalda fyrir fyrirtæki

Fréttir

Við hvetjum alla félagsmenn Bílgreinasambandsins sem hafa tök á að taka á móti nema í vinnustaðanám í sumar að taka þátt í stuttri könnun. Þessa dagana er IÐAN að kanna áhuga hjá fyrirtækjum að taka þátt í þessu átaksverkefni.  

IÐAN tekur þátt í átaksverkefni stjórnvalda sem miðar að því að fjölga tækifærum fyrir iðnnema sem eru án námssamnings að komast í vinnustaðanám í sumar. Markmiðið er að hvetja fyrirtækin til að taka viðbótarnema og þar með fjölga nemum í vinnustaðanámi. Úrræði stjórnvalda gildir frá 15. maí til 15. september 2021. Hverjum nema fylgir styrkur sem nemur launum skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags auk mótframlags í lífeyrissjóð. Fyrirtækið þarf að greiða önnur launatengd gjöld s.s. orlof, í sjúkrasjóð, tryggingagjald, orlofsheimilasjóð og Virk.

Ef þitt fyrirtæki hefur áhuga að taka þátt þá er næsta skref að fylla út þetta form hér.