Fara í efni

Vill auka hlut­deild Peu­geot á Íslandi

Fréttir

Frétt af mbl.is

Það þykja alltaf stór­ar frétt­ir í ís­lenska bíla­heim­in­um þegar merki skipt­ir um söluaila, en bráðum mun Brim­borg taka yfir sölu Peu­geot-bif­reiða á Íslandi.

Bern­h­ard á Íslandi hef­ur verið söluaðili fyr­ir danska Peu­geot-inn­flytj­and­ann K.W. Bru­un síðan árið 2005, en samn­ing­ur Bern­h­ard við K.W. Bru­un gild­ir óbreytt­ur til 31. ág­úst 2017. Lík­legt má því telj­ast að á tíma­bili verði tveir inn­flutn­ingsaðilar á Peu­geot á Íslandi og breyt­ing­in mun hafa veru­leg áhrif á Bern­h­ard á Íslandi enda Peu­geot annað af tveim­ur merkj­um inn­flytj­and­ans.

Hefja sölu strax í sum­ar

Í frétta­til­kynn­ingu frá Brim­borg kem­ur fram að í kjöl­far viðamik­ill­ar end­ur­skipu­lagn­ing­ar í hagræðing­ar­skyni hjá bíla­fram­leiðand­an­um PSA, sem er eig­andi bíla­merkj­anna Peu­geot og Citroën, þá hef­ur PSA hafið ferli sem miðar að því að setja und­ir einn hatt inn­flutn­ing vörumerkj­anna tveggja í hverju landi fyr­ir sig. Breyt­ing­ar hafa verið gerðar í Nor­egi og víðar eru breyt­ing­ar í far­vatn­inu. Þetta mun því einnig hafa áhrif á skipu­lag inn­flutn­ings nýrra Peu­geot-bíla og Peu­geot-vara­hluta á Íslandi en Brim­borg tek­ur yfir ábyrgð á inn­flutn­ingi Peu­geot-bíla og vara­hluta vegna Peu­geot til Íslands. Blaðamaður Bíla­blaðs Morg­un­blaðsins tók stutt viðtal við Egil Jó­hanns­son, for­stjóra Brim­borg­ar vegna þessa enda að ýmsu að hyggja við breyt­ing­ar af þessu tagi. „Við reikn­um með að Peu­geot starf­semi Brim­borg­ar verði kom­in í gang strax í sum­ar. Mik­il hagræðing mun verða af þess­um breyt­ing­um þar sem Brim­borg mun flytja inn bæði bíla og vara­hluti beint af fram­leiðanda eins og verið hef­ur með Citroën. Hagræðing­in mun einnig ná til Citroën þar sem aukið flutn­ings­magn fyr­ir bíla og vara­hluti mun lækka kostnað og ýmis önn­ur hagræðing mun eiga sér stað. Viðskipta­vin­ir munu í kjöl­far þess­ara breyt­inga sjá meira úr­val Peu­geot-bíla í boði á Íslandi, lægra bíl­verð og lægra vara­hluta­verð,“ sagði Eg­ill. Fyrstu 100 Peu­geot bíl­arn­ir hafa verið pantaðir og koma til lands­ins í næsta mánuði. Þeir eru keypt­ir fyr­ir bíla­leig­urn­ar, Thrifty Car Rental, Doll­ar Rent A Car og Saga Car Rental.

Meiri aðgrein­ing merkja

Eg­ill sér mik­il tæki­færi í Peu­geot-merk­inu sem mun færa Brim­borg enn ofar á sölu­lista nýrra bíla. „Við mun­um breyta um áhersl­ur enda þurf­um við að auka hlut­deild Peu­geot á Íslandi veru­lega. Við erum að vinna í grein­ingu á markaðnum í sam­ráði við Peu­geot í Frakklandi og vinn­um að markaðsáætl­un til að koma styrk­leik­um merk­is­ins á fram­færi. PSA Group, sem á bæði merk­in, hef­ur sett upp nýja stefnu þar sem aðgrein­ing verður mun meiri milli merkj­anna en áður. Við höf­um fengið kynn­ingu hjá PSA þar sem við feng­um að gægj­ast inn í framtíðina fyr­ir öll merk­in þrjú, þ.e. Peu­geot, Citroën og DS. Þar hafa þeir aðgreint vöru­lín­urn­ar al­ger­lega frá hvorri ann­arri þannig að þær höfða til mis­mun­andi mark­hópa,“ sagði Eg­ill. „Við höf­um sett okk­ur mjög metnaðarfull mark­mið, bæði fyr­ir Peu­geot og Citroën, og munu bæði merk­in auka hlut­deild sína veru­lega og nálg­ast það sem þekk­ist best í Evr­ópu en þar er sam­an­lögð hlut­deild merkj­anna 7%.“

Átta lúx­us­bíla­merki á næsta ári

PSA-bíla­sam­steyp­an er einnig með lúxusmerkið DS en Brim­borg reikn­ar með að kynna DS til sög­unn­ar seinnipart árs 2017. Með því bæt­ist enn eitt lúx­us­bíla­merkið við sölu hér á Íslandi en BL er um það bil að koma með Jag­ú­ar-merkið í sölu. Bæt­ast þessi tvö merki við sölu lúx­us­bif­reiða frá Mercedes-Benz, Audi, BMW, Land Rover, Porsche og Volvo. Verða þá átta lúx­us­bíla­merki til sölu á Íslandi þegar þar að kem­ur. Brim­borg mun þá selja sex bíla­merki fyr­ir utan að selja bæði Renault- og Volvo-at­vinnu­bíla. Kall­ar þessi aukna breidd ekki á stærra hús­næði? „Jú og þess vegna höf­um við sótt um lóð á Há­deg­is­mó­um 7 og feng­um út­hlutað í síðasta mánuði,“ sagði Eg­ill. „Þangað mun­um við flytja alla starf­semi Volvo-at­vinnu­tækja en lóðin er 14.000 fer­metr­ar. Við það rýmk­ar veru­lega um okk­ur og gef­ur okk­ur ýmis tæki­færi. Einnig eig­um við lóðina á Breiðhöfða 1, beint á móti Brim­borg. Við erum að vinna í púslu­spil­inu og þetta lof­ar allt góðu,“ sagði Eg­ill að lok­um.

http://www.mbl.is/bill/frettir/2016/02/16/vill_auka_hlutdeild_peugeot_a_islandi/