Fara í efni

Vetrardagar á Sævarhöfða og 400 hestafla rafbíll Jaguar við Hestháls

Fréttir

Það verður mikið um að vera hjá BL á morgun, laugardaginn 3. nóvember milli kl. 12 og 16. Við Sævarhöfða verður sannkölluð vetrarveisla með sértilboðum og kaupaukum með nýjum bílum og á Hesthálsi kynnir fyrirtækið hinn nýja 400 hestafla og fjórhjóladrifna rafbíl, Jaguar I-PACE, þar sem áhugasamir geta m.a. bókað tíma í reynsluakstur.

SÆVARHÖFÐI

Á sýningu BL við Sævarhöfða verður fjöldi fólksbíla og jepplinga boðinn á sérstökum vetrarkjörum og ákveðnum kaupaukum. Við Sævarhöfða eru umboð BL fyrir BMW, Dacia, Isuzu, Nissan, Renault og Subaru. Veglegur kaupauki að verðmæti allt að 300 þúsund krónum fylgir staðfestingu á kaupum á nýjum bíl því í kaupunum fylgja vetrardekk, gúmmímotta í skottið, keramikklakkhúðun á bílnum fyrir veturinn auk þess sem fyrsta ábyrgðarskoðun á nýja bílnum er eiganda að kostnaðarlausu.

HESTHÁLS

Við Hestháls kynnir Jaguar Land Rover nýja 400 hestafla fjórhjóladrifna rafbílinn Jaguar I-Pace sem nýlega kom fram á sjónarsviðið eins og stormsveipur eftir langa bið aðdáenda merkisins. I-Pace er fyrsti 100% rafbíll Jaguar og geta áhugasamir bókað tíma í reynsluakstur á frumgerðum I-Pace sem staddir eru á landinu tímabundið. Fjölmargir hafa nú þegar lagt inn pöntun fyrir I-Pace hjá BL sem hefur afhendingu á fyrstu sölubílunum í mars.

Aðeins 4,8 sek. í 100

Jaguar I-Pace hefur allt að 470 km drægni við venjubundna daglega notkun í ECO-stillingu samkvæmt nýja mælistaðlinum WTPL. I-Pace er búinn tveimur rafmótorum sem saman skila um 696 Nm togi og er hann aðeins 4,8 sek. í 100 km/klst. Vegna straumlínulögunar, háþróaðs fjórhjóladrifs og lágs og miðlægs þyngdarpunkts steinliggur bíllinn eins og sönnum sportbíl sæmir. Vegna snjalltækni I-Pace og þráðlausrar nettengingar er það ætlun Jaguar að hægt verið að hlaðið sjálfkrafa niður uppfærslum á hugbúnaði fyrir stjórnkerfi I-Pace.

Breti bíll ársins 2019 í Þýskalandi

Jaguar I-Pace var í síðustu viku kjörinn „Bíll ársins 2019“ í Þýskalandi að undangenginni prófun á 59 öðrum bíltegundum og gerðum. Þjóðverjar kusu I-Pace „vegna byltingarkennds samspils aksturseiginleika, afkasta og hönnunar.“ Þegar úrslitin voru kynnt sagði Jens Meiners, formaður þýsku dómnefndarinnar, að ekki aðeins væri I-Pace fyrsti lúxusrafbíll hins rótgróna breska bílaframleiðanda, heldur veiti I-Pace skilyrðislaust alla helstu kosti rafmagnstækninnar. Þeir birtast m.a. í heillandi afköstum og hönnun sem skiluðu honum sigursætinu í vali á bíl ársins 2019 í Þýskalandi. Þess má geta að lokum að nýlega lögðu stjórnendur breska bílaþáttarins Top Gear hjá BBC mat á rafbílana á breska markaðnum. Eftir ítarlegar prófanir á tíu helstu bíltegundunum komust þeir að þeirri niðurstöðu að fyrir sitt leyti væri I-Pace án efa sá besti.