Fara í efni

Vel heppnaður haustfundur BGS á Akureyri um liðna helgi

Fréttir

Haustfundur BGS var haldinn á Akureyri um liðna helgi. Um 100 manns mættu á samkomuna sem tókst frábærlega. Hátíðin hófst í nýju og glæsilegu verkstæði hjá Kraftbílum en þeir voru að taka í notkun nýtt húsnæði sem sérhannað er til að gera við stóra bíla og vinnuvélar. Veitingarnar voru ekki að verri endanum eða hreindýr, konfekt og aðrar góðar veigar.

Þarnæst var haldið uppí Höld en þar var búið að breyta verkstæði í veitinga og skemmtistað! Þar var boðið uppá frábæran mat, steik sem bráðnaði í munni og góðar veigar með því. Einnig voru skemmtiatriði í hæsta gæðaflokki, söngur glens og gleði var ríkjandi frameftir kvöldi.

Við þökkum þeim hjá Höldi og Kraftbílum fyrir frábærar móttökur og að hafa gert þessa heimsókn mögulega þar sem allir skemmtu sér hið besta.