Fara í efni

Vegna misvísandi upplýsinga um stofn bifreiðahlunninda

Fréttir
Vegna misvísandi upplýsinga um stofn bifreiðahlunninda.
Vegna misvísandi upplýsinga um stofn bifreiðahlunninda.

Umfjöllunin: SVÞ og Bílgreinasambandinu bárust upplýsingar um að óljóst hefði þótt hvort draga ætti fjárhæð rafbílastyrks úr Loftslag- og orkusjóði frá kaupverði bíls við ákvörðun stofns bifreiðahlunninda. Með öðrum orðum og í dæmaskyni hvort stofn bifreiðahlunninda vegna rafbíls sem var keyptur á 9 millj. kr. nemi 9 millj. kr. eða 8,1 millj. kr., þegar fengist hefur 900 þús. kr. styrkur úr sjóðnum. Að höfðu samráði við Skattinn vilja samtökin koma því á framfæri að bifreiðahlunnindin reiknast af kaupverði að frádregnum styrknum, sé á annað borð sótt um og hann ákvarðaður.

Nánari umfjöllun um bifreiðahlunnindi má finna á vefslóðinni https://www.skatturinn.is/einstaklingar/tekjur-og-fradraettir/skattmat/.
Þá má einnig finna reiknivél bifreiðahlunninda á eftirfarandi vefsíðu: https://www.skatturinn.is/einstaklingar/reiknivelar/reiknivel-bifreidahlunninda/.