Fara í efni

Veg­leg­ur jeppi og vandaður

Fréttir

Frétt af mbl.is

Ekk­ert lát er á nýj­um val­kost­um á bíla­markaðnum þegar kem­ur að hvers kon­ar jeppa­út­færsl­um, allt frá smæstu jepp­ling­um til vold­ug­ustu risajeppa. Allt sem ber auðkennið „crosso­ver“ renn­ur ljúft ofan í bíla­kaup­end­ur þessi dægrin og fram­leiðend­ur hafa brugðist við með mynd­ar­skap.

Ford læt­ur sitt ekki eft­ir liggja og tefl­ir fram Ford Edge, sem hef­ur tals­verða burði til að láta að sér kveða í sam­keppn­inni. Þessi jeppi er býsna veg­leg­ur, vel úti­lát­inn hvað búnað varðar og silkimjúk­ur í akstri.

Spari­leg­ur að inn­an

Edge er hinn álit­leg­asti að inn­an, með ríku­leg­um staðal­búnaði og snerti­skjá sem virk­ar fanta­vel. Efn­is­valið kom líka skemmti­lega á óvart, lítið um plast en þess meira leður. Nýja­lykt­in var fyr­ir bragðið fyr­ir­tak inn­an­stokks (því meiri gervi­efni, þeim mun lak­ari nýja­lykt) og bíll­inn sem prófaður var reynd­ist vel til þess bær að meta nýja­lykt­ina því hon­um hafði verið ekið inn­an við 50 kíló­metra. Auðvelt reynd­ist að stilla sætið svo vel færi um öku­mann og viðmótið allt virkaði mjög vel; það er eitt að setja veg­leg­an snerti­skjá í bíl og annað að gera viðmótið þar að baki not­enda­vænt. Ford Edge stóðst það próf með sóma og enga stund tók að átta sig á kerf­inu.

Plássið að inn­an í Ford Edge er einkar ríf­legt, bæði fyr­ir öku­mann sem og farþega. Þá er skemmti­lega auðvelt að halla sæt­is­bök­um farþega í aft­ur­sæti, sem er ljóm­andi kost­ur. Sömu sögu er að segja um far­ang­urs­rýmið, sem tel­ur ríf­lega 600 lítra og rúm­ar fyr­ir bragðið flest það sem manni dett­ur á annað borð í hug að ferja um í jeppa.

Fág­un í fram­gangs­máta

Rétt eins og stærðin á Ford Edge er kost­ur hvað varðar inn­an­rýmið fylg­ir sá bögg­ull skammrifi að jepp­inn er svo­lít­ill hlemm­ur. Hann veg­ur tæp­lega tvö tonn og helsti kost­ur­inn varðandi akst­ur­seig­in­leika er að Edge er silkimjúk­ur að keyra en hann verður ekki sakaður um óþarfa sprett­hörku. Hann get­ur gefið þokka­lega í en ekk­ert meira en það. Hann er held­ur ekki smíðaður fyr­ir spyrnuakst­ur né held­ur keypt­ur með slíkt í huga en það hefði verið gam­an að fá svo­lítið urr í vél­ina og svo­lítið fleiri hesta und­ir húddið til að draga þenn­an veg­lega vagn. Dag­skip­un­in hér geng­ur hins veg­ar út á fág­un og hana hef­ur Ford Edge til að bera í ríku­leg­um mæli. Eldsneytis­eyðslu tókst með herkj­um að halda nokk­urn veg­inn í sex lítr­um rúm­leg­um og telst það all­gott fyr­ir ann­an eins bíl.

Útsýnið og beygjura­díus­inn

Annað má finna að sem teng­ist stærðinni og það er út­sýni öku­manns. Húddið nær langt til allra átta, topp­flöt­ur­inn á mæla­borðinu er helst til djúp­ur og þetta ger­ir það að verk­um að úr verður all­nokk­ur sjón­deild­ar­hring­ur og ekki alltaf gott að átta sig á því hvort fram­end­inn, einkum horn­in, eru við það að rek­ast utan í eitt­hvað, t.d. þegar lagt er í bíla­stæði. Í ofanálag eru a-póst­arn­ir tals­vert sver­ir og allt þetta ger­ir það að verk­um að út­sýni öku­manns er minna fram á við en ákjós­an­legt væri. Bakk­mynda­vél­in sér svo aft­ur um sitt og það með sóma. Ekki veitti held­ur af, því að beygjura­díus­inn var drjúg­ur og það þurfti því að bakka svo­lítið fram og til baka þegar snúa þurfti bíln­um við á bíla­stæði.

Gott út­lit sem get­ur enn batnað

Ford Edge hef­ur til að bera reffi­legt út­lit og mun­ar þar mestu um hag­an­lega hannað fram­grill. Fyr­ir bragðið er bíll­inn til­komu­mik­ill á vegi og svip­ur hans er auðþekkj­an­leg­ur í um­ferðinni. Samt læðist að manni sú til­finn­ing að það megi taka hönn­un bíls­ins og skerpa hana lítið eitt í viðbót – hnit­miða svip­inn aðeins. Ford Edge „lúkk­ar“ og eng­um blöðum er um það að fletta, en sá sem þetta rit­ar hef­ur á til­finn­ing­unni að næsta and­lits­lyft­ing verði sann­kallaður smell­ur.

Ford Edge kost­ar frá tæp­um átta millj­ón krón­um og svo fremi sem fólk set­ur ekki fyr­ir sig að bíll­inn legg­ur meira upp úr mjúk­um akstri frek­ar en urr­andi snerpu er hann góður kost­ur í flokki sem er full­ur af sterk­um keppi­naut­um, þar með talið Kia Sor­ento og Hyundai Santa Fe.

http://www.mbl.is/bill/domar/2016/09/06/veglegur_jeppi_og_vandadur/