Fara í efni

Vefveisla HEKLU

Fréttir

HEKLA hefur opnað nýja vefverslun, www.hekla.is/vefverslun og af því tilefni verður blásið til heljarinnar veislu laugardaginn 9. mars milli klukkan 12 og 16 á Laugavegi 170-174 sem og hjá HEKLU notuðum bílum að Kletthálsi 16.

Veltibíllinn sívinsæli mætir á Laugaveginn og býður gestum uppá snúning en fyrir krakkana verður líka andlitsmálning í boði auk þess sem blöðrulistamenn sýna listir sína.

Ljúffengir kleinuhringi frá Krispy Kreme verða í boði á meðan birgðir endast og auðvitað safar og gos til að skola þeim niður með.

Margvísleg tilboð verða á bæði nýjum sem notuðum bílum frá HEKLU og aukahlutum. Þar má nefna sérstök veftilboð á Volkswagen e-Golf, Audi Q7 e-tron, Skoda Karoq, Mitsubishi Eclipse og fleiri nýjum bílum. Notaðir bílar HEKLU á Kletthálsinum bjóða vel valda gullmola á sértilboði og á aukahlutum verður 20% afsláttur af öllum þverbogum, hjóla- og skíðafestingum auk annarra tilboða.

Í marsmánuði verður skemmtilegur páskaleikur í gangi í HEKLU þar sem þú getur mætt á svæðið og talið páskaeggin í skottinu á æðislegum appelsínugulum Volkswagen Polo og skráð þig til leiks á heimasíðu HEKLU. Vikulega verða dregin út tvö páskaegg frá Góu og hvorki meira né minna en 100.000 króna inneign í vefverslun HEKLU!

„Opið er allan sólarhringinn í nýrri og glæsilegri vefverslun HEKLU og þar er hægt að skoða úrval bíla sem til eru á staðnum, eða eru á leiðinni til landsins, frá Audi, Volkswagen, Skoda og Mitsubishi. Hægt er að skoða staðalbúnaðinn, hvaða aukabúnaður fylgir bílunum og hvað þeir kosta. Þú getur pantað þér þinn uppáhaldsbíl á vefnum. Í vefversluninni er einnig hægt að skoða úrvalið á aukahlutum frá öllum okkar merkjum, ganga frá kaupum og fá þá heimsenda. Þetta er mjög spennandi þróun sem við vonum að viðskiptavinir okkar kunna vel að meta,“ segir Jóhann Ingi Magnússon vörumerkjastjóri og hvetur fólk til að líta við í veisluna á laugardaginn.