Fara í efni

Um það bil helmingur bílavarahluta bar vörugjöld fyrir breytingar

Fréttir

Með breytingum er stjórnvöld gerðu á vörugjöldum um sl. áramót voru vörugjöld á bílavarahlutum felld niður.  Bílgreinasambandið hefur lengi bent á og barist fyrir að vörugjöld á varahlutum væru felld niður og þá sérstaklega þeim hlutum er snúa beint að öryggisbúnaði.  Nú hefur það ánægjulega gerst og varahlutir bera ekki lengur vörugjöld.

Hins vegar að gefnu tilefni er rétt að benda á að uþb. 50% varahluta í bíla báru ekki vörugjöld fyrir þessar breytingar og því er langt því frá að allir varahlutir hafi lækkað í verði eftir að áðurnefndar breytingar áttu sér stað um sl. áramót.  Nokkuð hefur borið á misskilningi vegna þessa og því vill Bílgreinasambandið benda á þá staðreynd að ekki er um flata lækkun á varahlutum er að ræða.   Hægt er að kynna sér hvaða hlutir báru vörugjöld og hverjir ekki hjá Tollstjóra.