Fara í efni

Toyota- og Lexuseigendur fá fría ástandsskoðun á bremsum

Fréttir

www.visir.is segir frá

Viðurkenndir þjónustuaðilar Toyota munu frá 16. mars og til mánaðamóta bjóða Toyota- og Lexuseigendum fría ástandsskoðun á bremsubúnaði bíla sinna. 

Auk ástandsskoðunarinnar býðst 20% afsláttur á bremsuklossum, bremsuborðum og bremsudiskum. Álag á bremsubúnað bíla er töluvert meira að vetri til en á öðrum árstímum og því er tilvalið fyrir Toyota- og Lexuseigendur að koma til næsta viðurkennda þjónustuaðila og láta líta á bremsurnar fyrir vorið. 

Toyotaeigendur eru hvattir til að panta tíma fyrir ástandsskoðunina en bílar eru þó teknir í skoðun án bókaðs tíma sé þess nokkur kostur. Viðurkenndir þjónustuaðilar Toyota eru 12 og þá má finna á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Selfossi, í Vestmannaeyjum, Garðabæ, Kópavogi, Reykjavík og Reykjanesbæ.

http://www.visir.is/toyota--og-lexuseigendur-fa-fria-astandsskodun-a-bremsum/article/2015150319658