Á bílasýningunni í Los Angeles sem er að hefjast verða veitt svokölluð Residual Value Awards til handa þeim bílaframleiðendum sem framleiða bíla er halda verði sínu best. Í þetta skiptið verða það framleiðendurnir Toyota og Land Rover sem verðlaunuð verða, Toyota í flokki hefðbundinna bíla og Land Rover í flokki lúxusbíla.
Af einstaka bílgerðum hljóta einnig verðlaun bílarnir Mazda3 fyrir smábíla, Subaru Legacy fyrir millistærðarbíla, Dodge Charger fyrir stóra fólksbíla, Subaru WRX fyrir sportbíla og Toyota Tundra í flokki pallbíla.
Þessi verðlaun þykja mikilvæg fyrir framleiðendur þar sem þau gefa kaupendum til kynna hvar fjárfestingar þeirra í bílum séu skynsamlegastar. Það skiptir ekki bara máli hvað bílar kosta í upphafi, heldur miklu fremur hversu vel þeir halda virði sínu í áframhaldinu. Toyota fékk flest Residual Value Awards verðlaun, eða samtals 6 af 26. segir í frétt á visir.is
Toyota og Land Rover bestir í endursölu
19.11.2014
Fréttir