Fara í efni

Taka stökkið upp í jepp­ling­ana

Fréttir

Tvö ár eru síðan Hyundai-umboðið opnaði veg­lega bíla­versl­un í Kaup­túni. Heiðar Sveins­son fram­kvæmda­stjóri seg­ir versl­un­ina vera smám sam­an að skjóta rót­um og neyt­end­ur að upp­götva þetta nýja bíla­sölu­svæði höfuðborg­ar­svæðis­ins.

Nýt­ur Hyundai-merkið tölu­verðar hylli um þess­ar mund­ir en fyrstu níu mánuði árs­ins er merkið með 7% markaðshlut­deild borið sam­an við 4,5% hlut í fyrra.

Seg­ir Heiðar að þessi góði ár­ang­ur skrif­ist m.a. á vandaða smíði og ann­áluð gæði Hyundai-bíla sem hvað eft­ir annað verði hlut­skarp­ast­ir í mæl­ing­um J.D. Power, sem og á hag­stætt verð, fal­lega hönn­un og mjög rausn­ar­lega fimm ára ábyrgð sem fylg­ir öll­um nýj­um bíl­um.

Fimm ára ábyrgð Hyundai er, að sögn Heiðars, ein sú yf­ir­grips­mesta sem þekk­ist á ís­lenska markaðinum og eng­inn ann­ar fram­leiðandi býður viðskipta­vin­um sín­um tak­marka­laus­an akst­ur yfir ábyrgðar­tím­ann, að und­an­skild­um þeim sem nota bíl­inn til at­vinnu­rekst­urs.

Útlitið hannað fyr­ir Evr­ópu

Ef ein­hverj­um kann að hafa þótt Hyundai-bíl­arn­ir í lummu­legri kant­in­um þá ætti nýj­asta lín­an að fá þá hina sömu til að skipta um skoðun en þar eru á ferð renni­leg­ir og snotr­ir bíl­ar með sport­leg út­lit­s­ein­kenni.

„Hyundai hef­ur und­an­farið end­ur­hannað flest­ar gerðir bíla sinna til að mæta bet­ur smekk Evr­ópu­búa.

Bón Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa verið að uppgötva nýju bílabúðina. Úr sýningarsalnum

Bón Íbúar höfuðborg­ar­svæðis­ins hafa verið að upp­götva nýju bíla­búðina. Úr sýn­ing­ar­saln­ummbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Fyrstu Hyundai-bíl­arn­ir sem seld­ir voru hér á landi voru fram­leidd­ir fyr­ir banda­ríska og asíska neyt­end­ur og end­ur­speglaði stíll­inn það. Í dag rek­ur Hyundai stór­ar bíla­verk­smiðjur í Tékklandi og Tyrklandi og fram­leiðir þar bíla á borð við i10, i20, i30 og ix35 fyrst og fremst með Evr­ópu­markað í huga. Er um að ræða sköp­un­ar­verk evr­ópskra bíla­hönnuða en hönn­un­ar- og þró­un­ar­deild Hyundai í Evr­ópu er í Frankfurt.“

 

Heiðar seg­ir söl­una dreifast nokkuð vel yfir stærðarflokk­ana en áber­andi er þó að sal­an er dræm í svo­kölluðum D-flokki sem er flokk­ur stærri fólks­bíla. „Þegar Íslend­ing­ar eru komn­ir í þenn­an stærðarflokk virðast þeir velja að taka stökkið upp í jepp­ling­ana sem eru næsti flokk­ur fyr­ir ofan. Mun­ar ekki miklu í verði en fjöl­skyld­an er þá kom­in á bíl sem ræður bet­ur við akst­ur í snjó og hálku og hent­ar bet­ur til úti­vist­ar og ferðalaga, hvort sem stefn­an er sett á há­lendið eða ætl­un­in að draga hjól­hýsi eða tjald­vagn um­hverf­is landið.“

Spar­neytni sjálf­sagður hlut­ur

Strax eft­ir hrunið marg­um­talaða var áber­andi að lands­menn settu bens­ín­eyðsluna á odd­inn.

Hyundai bílar koma með langri og rausnarlegri ábyrgð.

Hyundai bíl­ar koma með langri og rausn­ar­legri ábyrgð. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Höfðu bíla­sal­ar marg­ir á orði að eldsneyt­is­notk­un­in væri það fyrsta sem spurt væri um. Heiðar seg­ir eldsneyt­is­notk­un vissu­lega vera ís­lensk­um neyt­end­um of­ar­lega í huga en í vax­andi mæli ganga neyt­end­ur að því vísu að vél­arn­ar séu spar­neytn­ar.

 

„Fram­leiðend­ur leggja sig alla fram við að smíða bíla sem svara kalli markaðar­ins um lægri rekstr­ar­kostnað og mæta um leið kröf­um stjórn­valda í Evr­ópu um minni út­blást­ur. Útkom­an er sú að í öll­um stærðarflokk­um eru bíl­arn­ir sem við selj­um í dag mun spar­neytn­ari en þeir bíl­ar sem við seld­um fyr­ir 6-8 árum.“

Heiðar bend­ir á hvernig Hyundai elt­ist við minnstu smá­atriði til að halda eyðslu­töl­un­um niðri. „Sem dæmi eru díóðuljós orðin mun meira áber­andi í bíl­un­um en áður, m.a. vegna þess að díóðuljós­in nota mun minni orku en hefðbund­in ljós og spara þannig eldsneyti.“

Leiðsögu­kerfi og þráðlaus­ar teng­ing­ar

Ann­ar búnaður sem áður þótti lúx­us er sömu­leiðis að verða að staðal­búnaði.

Hyundai á Íslandi er í Kauptúni í Garðabæ.

Hyundai á Íslandi er í Kaup­túni í Garðabæ. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

„Hyundai hef­ur m.a. hannað betri demp­un fyr­ir bíl­ana og lagt áherslu á bætta hljóðein­angr­un til að gera akst­ur­inn enn þægi­legri fyr­ir alla um borð. Blu­et­ooth-kerfi er einnig al­geng­ur staðal­búnaður og end­ur­spegl­ar bæði að fólk vill geta notað sím­ana sína hand­frjálst und­ir stýri en líka tengt tón­list­arsafnið í sím­un­um við hljóm­kerfi bíls­ins.“

 

Loks seg­ir Heiðar að GPS-búnaður sé orðinn staðall í stærri bíl­un­um frá Hyundai. Þó að vega­kerfið á Íslandi sé ekki flókið seg­ir hann að fólk upp­götvi fljótt þau þæg­indi sem fylgja þess­um tækj­um og geti eft­ir það vart hugsað sér að aka án þeirra. „Upp­lif­un­in er allt önn­ur en að þurfa að fletta upp í kort­asíðum síma­skrár­inn­ar eins og lands­menn eru marg­ir van­ir að gera. GPS-kerf­in í Hyundai virka snurðulaust á Íslandi með viðeig­andi upp­færslu og hægt að slá inn nöfn­in á öll­um göt­um lands­ins. Kem­ur GPS-leiðar­vís­ir­inn fólki greiðlega á áfangastað og spar­ar þannig bæði tíma og óþarfa akst­ur.“

ai@mbl.is