Fara í efni

Sölutölur nýrra bíla - sala nýorkubíla eykst

Fréttir

 

  • Í september seldust 1014 nýir fólksbílar, eða 41,8% fleiri bílar en í september í fyrra.
  • Á fyrstu 9 mánuðum ársins hafa selst 7268 nýir fólksbílar, eða 26,1% færri en á sama tímabili í fyrra.
  • Sala til einstaklinga hefur aukist á árinu um 3,0% á fyrstu 9 mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Sala til almennra fyrirtækja (fyrirtæki önnur en bílaleigur) hefur einungis dregist saman um 8,1% það sem af er ári.
  • Nýorkubílar standa enn fyrir meirihluta bílakaupa hjá einstaklingum á árinu, eða 66,7% af öllum seldum nýjum bílum til einstaklinga það sem af er ári. Þetta hlutfall var 42,2% á sama tíma á síðasta ári.
  • Svipað gildir um almenn fyrirtæki (önnur en bílaleigur) en 58,9% allra nýrra bíla sem þau hafa keypt á árinu eru nýorkubílar samanborið við 38,9% á sama tíma á síðasta ári.

Sala nýrra fólksbíla í september jókst um 41,8% miðað við september í fyrra, en alls voru skráðir 1014 nýir fólksbílar nú en voru 715 í fyrra. Hefur þá sala nýrra bíla í heildina dregist saman um 26,1% á fyrstu 9 mánuðum ársins borið saman við sama tímabil í fyrra, þar sem 7268 nýir fólksbílar hafa selst í ár en voru 9838 í fyrra, en það liggja eðlilegar ástæður þar að baki.

Einstaklingar hafa verið iðnir við bílakaup á árinu því til þeirra hafa selst 4021 nýir fólksbílar það sem af er ári og er það aukning upp á 3,0% miðað við sama tíma í fyrra þegar selst höfðu 3904 bílar til einstaklinga. Þessi hluti markaðarins hefur því verið með miklum ágætum. Þá hafa almenn fyrirtæki (önnur en bílaleigur) keypt 1461 bíl í ár miðað við 1590 bíla í fyrra, eða einungis 8,1% færri bíla en í fyrra. Það er því ljóst að samdráttinn í heildarsölunni það sem af er ári má fyrst og fremst rekja til færri seldra bíla til ferðaþjónustunnar.

Þessi góða sala til einstaklinga hefur einnig verið til staðar á notaða bílamarkaðnum því umfang hans það sem af er ári hefur verið meira en í fyrra og því ljóst að einstaklingar hafa ekki látið ástandið vegna kórónuveirunnar letja sig of mikið þegar kemur að bílakaupum.

Nýorkubílar (rafmagns, tengiltvinn, hybrid, metan) standa ennþá fyrir stórum hluta af öllum seldum nýjum bílum á þessu ári. Bæði einstaklingar og fyrirtæki sækja í auknum mæli í slíka bíla en framboð þeirra er jafnframt alltaf að aukast og því orðið auðveldara að finna bíla sem henta þörfum hvers og eins. Það sem af er ári eru nýorkubílar 66,7% allra nýrra bíla sem einstaklingar hafa keypt (rafmagn 31,4%, tengiltvinn 21,1%, hybrid 13,5% og metan 0,7%) en þetta hlutfall var 42,2% á sama tíma á síðasta ári. Svipaða sögu er að segja af almennum fyrirtækjum (fyrirtæki önnur en bílaleigur) en þar er hlutfallið 58,9% nú miðað við 38,9% á sama tíma í fyrra.