Fara í efni

Samtök iðnaðarins og Bílgreinasambandið slíta viðræðum

Fréttir

Bílgreinasambandið (BGS) mun ekki ganga til liðs við Samtök iðnaðarins (SI) eins og stefnt var að, en fyrr á þessu ári hófust samningaviðræður milli aðila sem ekki gengu eftir. Þau samlegðaráhrif sem horft var til með innkomu Bílgreinasambandsins í Samtök iðnaðarins reyndust ekki vera eins mikil og gert var ráð fyrir í upphafi viðræðnanna. Því hefur það orðið að samkomulagi beggja aðila að slíta viðræðunum. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá báðum aðilum.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, vonast eftir því að tengsl samtakanna og BGS haldist góð. „Það hefur því miður ekki náðst samkomulag eins og til stóð. Það var mikill vilji til þess að láta á það reyna en þegar til kom reyndist vera of langt á milli í hugmyndum um samlegðaráhrifin sem voru forsenda viðræðnanna. Við eigum það sameiginlegt að vilja öflugan iðnað í landinu og vonumst eftir að eiga áfram gott samtal við stjórnendur BGS.“

Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins, telur hagsmuni félagsmanna betur borgið utan samtakanna eins og er. „Stjórn BGS hefur metið það svo að hagsmunum félagsmanna sé að svo stöddu betur borgið utan raða SI heldur en innan samtakanna. Við viljum áframhaldandi jákvæða og góða samvinnu við SI með það að markmiði að efla iðnað og standa vörð um góða menntun og fagleg vinnubrögð. Við viljum því áfram eiga góð samskipti við stjórnendur SI.“