Fara í efni

Sala nýrra fólksbíla í september 2023

Fréttir

FRÉTTATILKYNNING

Sala nýrra fólksbíla í september 2023

Sala nýrra fólksbíla dróst saman í september um 4,9% miðað við september í fyrra, en alls voru skráðir 1.136 nýir fólksbílar nú en voru 1.194 í september í fyrra. Í heildina eftir fyrstu níu mánuði ársins hefur sala nýskráðra ökutækja aukist um 5,4%. Í ár hafa selst 13.838 nýir fólksbílar samanborið við 13.127 nýja fólksbíla í fyrra.

*Tölur eru YTD

Til einstaklinga seldust 760 nýir fólksbílar í september samanborið við 659 á sama tíma í fyrra og er því aukning í sölu til einstaklinga 15,3% milli ára. Það sem af er ári hafa selst 5.356 nýir fólksbílar til einstaklinga en í fyrra á sama tíma var sala til einstaklinga 4.790 nýskráðir fólksbílar. Er því aukning í sölu til einstaklinga 11,8% það sem af er ári.

*Tölur eru YTD

Almenn fyrirtæki (önnur en ökutækjaleigur) keyptu 234 nýja fólksbíla í september í ár miðað við að hafa keypt 186 fólksbíla í september í fyrra og er því aukning þar milli ára 25,8%. Það sem af er ári hafa selst 1.714 nýir fólksbílar til almennra fyrirtækja en í fyrra á sama tíma voru seldir 1.323 nýir fólksbílar og er því aukning milli ára um 29,6%.

*Tölur eru YTD

Ökutækjaleigur keyptu 135 nýjan fólksbíl í september samanborið við 337 á sama tíma í fyrra og er því samdráttur á sölu fólksbíla í ökutækjaleigur um 59,9% miðað við sama tímabil fyrir ári. Það sem af er ári hafa verið skráðir 6.674 nýir fólksbílar í ökutækjaleigu samanborið við 6.754 fólksbíla í fyrra. Er það samdráttur um 1.2% milli ára.

*Tölur eru YTD

Hlutfall rafmagnsbíla er hæst þegar við skoðum heildarsölu eftir orkugjöfum það sem af er ári eða 42,1%. Hybrid koma þar á eftir með 19,5% af sölunni, dísel 15,2%, bensín 12,3%, og tengiltvinn 10,9% sem hlutfall sölunnar. Einnig hafa tveir metan, einn vetnis og einn með skráð óþekktan orkugjafa verið seldir á árinu.

Ef við skoðum sölu til einstaklinga og fyrirtækja (annarra en ökutækjaleiga) þá eru 66,1% að velja sér rafmagnsbíl. Þar á eftir kemur sala tengiltvinnbíla 13,0%, hybrid 11,5%, dísel 6,3% og bensín 3,0% sölunnar.

Í september var mest selda tegundin Tesla með 328 selda fólksbíla, þar á eftir kemur Toyota með 103 selda fólksbíla og þriðja mest selda tegundin í september var KIA með 88 fólksbíla skráða.