Fara í efni

Sala nýrra fólksbíla í nóvember 2023

Fréttir

FRÉTTATILKYNNING

Sala nýrra fólksbíla í nóvember 2023

Sala nýrra fólksbíla í mánuðinum er á pari miðað við nóvember í fyrra. Alls voru skráðir 1.297 nýir fólksbílar nú í nóvember en voru 1.295 í sama mánuði í fyrra. Er það aukning upp á 0,2%.

Í heildina eftir fyrstu ellefu mánuði ársins er aukning í sölu nýskráðra fólksbíla 5,7% milli ára. Í ár hafa selst 16.095 nýir fólksbílar samanborið við 15.232 nýja fólksbíla í fyrra.

*Tölur eru YTD

Til einstaklinga seldust 995 nýir fólksbílar í nóvember samanborið við 795 á sama tíma í fyrra og er því aukning í sölu til einstaklinga 25,2% milli ára. Það sem af er ári hafa selst 7.086 nýir fólksbílar til einstaklinga en í fyrra á sama tíma var sala til einstaklinga 6.165 nýskráðir fólksbílar. Er því aukning í sölu til einstaklinga 14,9% milli ára.

*Tölur eru YTD

Almenn fyrirtæki (önnur en ökutækjaleigur) keyptu 224 nýja fólksbíla í nóvember í ár miðað við að hafa keypt 198 fólksbíla í nóvember í fyrra og er því aukning þar milli ára 13,1%. Það sem af er ári hafa selst 2.157 nýir fólksbílar til almennra fyrirtækja en í fyrra á sama tíma voru seldir 1.685 nýir fólksbílar og er því aukning milli ára um 28,0%.

*Tölur eru YTD

Ökutækjaleigur keyptu 78 nýjan fólksbíl í nóvember í ár samanborið við 302 á sama tíma í fyrra og er því samdráttur á sölu fólksbíla í ökutækjaleigur um 74,2% miðað við sama tímabil fyrir ári. Það sem af er ári hafa verið skráðir 6.845 nýir fólksbílar í ökutækjaleigu samanborið við 7.224 fólksbíla í fyrra. Er það samdráttur um 5.2% milli ára.

*Tölur eru YTD

Hlutfall rafbíla er hæst þegar við skoðum heildarsölu eftir orkugjöfum það sem af er ári eða 46,9%. Hybrid koma þar á eftir með 17,7% af sölunni, dísel 13,7%, bensín 11,3% og tengiltvinn 10,5% sem hlutfall sölunnar. Einnig hafa tveir metan, einn vetnis og einn með skráð óþekktan orkugjafa verið seldir á árinu.

Ef við skoðum sölu til einstaklinga og fyrirtækja (annarra en ökutækjaleiga) í nóvember þá eru 83,4% að velja sér rafbíl, 7,4% tengiltvinnbíl, 4,9% hybrid, 2,5% dísel og 1,7% bensín. Það sem af er ári eru hlutfall rafbíla í nýskráningum fólksbíla 68,9%. Þar á eftir kemur sala tengiltvinnbíla 12,0%, hybrid 10,3%, dísel 5,9% og bensín 2,9% sölunnar.

Í nóvember var mest selda tegundin Tesla með 627 selda fólksbíla, þar á eftir kemur Hyundai með 73 selda fólksbíla og þriðja mest selda tegundin í nóvember var KIA með 72 fólksbíla skráða.

Ef við horfum aðeins til Evrópu (meðtalin EFTA ríkin og Bretland) þá er aukning í sölu fólksbíla milli ára 16,7% fyrstu tíu mánuði ársins (jan til og með okt). Mest aukning milli ára er í sölu rafbíla eða 45,1%, þar á eftir kemur hybrid með 28,6%, bensín 11,7% og tengilvinn með 4,5% en það er samdráttur í sölu díselbíla um 5,8% milli ára.