Fara í efni

Raf­magnaður draum­ur frá Audi

Fréttir

Frétt af mbl.is

Um þess­ar mund­ir má gera kjara­kaup á bíl­um sem falla und­ir flokk­inn „tvinn-tengi­bíl­ar“ (sem er af­leitt nýyrði) eða „plug-in hybrid“ þar eð þeir falla í svo­kallaðan núll-tolla­flokk.

Í þessu er verið að verðlauna þá sem leggja sitt af mörk­um til um­verf­is­vernd­ar með því að kaupa bíla sem ganga líka fyr­ir raf­magni og það eru þar á meðal mikl­ir hágæðabíl­ar sem fást á gletti­lega góðu verði, sé mið tekið af því sem fæst fyr­ir pen­ing­inn. Þarna á meðal er e-tron út­færsl­an á jeppa-flagg­skip­inu frá Audi – Q7 – en hann hlýt­ur að telj­ast með þeim áhuga­verðustu í þess­um flokki. Veru­lega vel heppnaður bíll.

Hlaðinn búnaði upp í topp

Þessi kyn­slóð Audi Q7 hef­ur þegar verið tek­in ít­ar­lega til kost­anna á þess­um vett­vangi og óþarfi að eyða plássi í að end­ur­taka lof­ræðuna síðan þá, orð fyr­ir orð. Í stuttu máli er Q7 ger­sam­lega hlaðinn af búnaði svo ríku­leg­um að jafn­ast á við það sem best ger­ist. Um­hverfi öku­manns verður ekki mikið bet­ur úr garði gert enda hafa höfuðstöðvarn­ar í In­golsta­dt löng­um lagt á það ríka áherslu að gera inn­an­rými Audi-bíla öðum bet­ur. Það er veru­lega krefj­andi verk­efni að ætla að gagn­rýna eitt eða neitt sem snýr að öku­manni í Q7. Upp­lýs­inga­gjöf um allt sem lýt­ur að akstr­in­um og bíln­um, still­ing­ar á ham bíls­ins (Com­fort fyr­ir inn­an­bæjarakst­ur, Dynamic fyr­ir milli­bæj­arakst­ur) og svo mætti lengi telja. Þessi jeppi er ein­fald­lega í fremstu röð þegar kem­ur að inn­an­rými og aðstöðu öku­manns. Efn­is­valið er svo allt til stakr­ar fyr­ir­mynd­ar.

Kannski ekki svo jeppaleg­ur?

Í akstri er hreint ekki eins og verið sé að aka jeppa því stýr­ing­in gef­ur næmt viðbragð eins og í fólks­bíl og það sem meira er, beygjura­díus­inn er svo nett­ur að hrein­um undr­um sæt­ir! U-beygj­ur eru tekn­ar eins og um smá­bíl væri að ræða og er þá síst fært í stíl­inn. En fág­un borg­ar­jepp­ans er góðu heilli ekki á kostnað ut­an­vegajepp­ans því með því að hækka Q7 upp í topp ásamt því að taka drif­búnað hans í gagnið er hér kom­inn tor­færujeppi sem stenst fer­leg­ustu aðstæðum snún­ing­inn. Und­ir­ritaður fékk að reyna þetta á tor­færu­svæði Audi í Suður-Þýskalandi og get­ur vottað að hann ræður við að keyra í slík­um hliðar­halla (ríf­lega 45°, segi og skrifa) að und­ir­ritaður var um tíma sann­færður um að nú myndi jepp­inn velta; þetta þyldi eng­inn bíll! En hann tók það án þess að blása úr nös.

Það er því ákveðin þver­sögn fólg­in í því að jeppi með slíka tor­færu­eig­in­leika er satt að segja ekki ýkja jeppaleg­ur að sjá – fyrr en hann er hækkaður upp með loft­púðafjöðrun­inni. Eldri kyn­slóðin var óneit­an­lega jeppalegri á velli, á meðan nú­ver­andi bíll er meira eins og stór og veg­leg­ur stati­on-bíll að sjá. En það má vel vera að það skipti kaup­end­ur engu, enda vega kost­ir bíls­ins miklu þyngra.

Raf­magnaðir eig­in­leik­ar Q7 e-tron

Audi Q7 e-tron hef­ur drægi á raf­magn­inu einu sam­an upp á röska 50 kíló­metra, það fékk grein­ar­höf­und­ur að reyna. Slíkt dug­ar borg­ar­bú­um frá degi til dags að heim­an og til vinnu, ekki síst ef þeir geta hlaðið bíl­inn í vinn­unni. Það sem meira er, það tek­ur ekki all­an dag­inn held­ur fyll­ist raf­hlaðan frá núlli á ein­ung­is tveim­ur og hálfri klukku­stund. Með raf­magns­gang­in­um nást eyðslu­töl­ur í blönduðum akstri sem í reynd ætti að vera ógern­ing­ur að ná á jeppa sem veg­ur tvö og hálft tonn og er þessi ár­ang­ur veg­leg fjöður í hnappagat verk­fræðing­anna hjá Audi. Ekki spill­ir að þegar öku­mann lang­ar að spretta úr spori býr Q7 e-tron yfir gríðarlegu vélarafli þegar dísil­mótor­inn og raf­hlaðan koma sam­an; þá fæst 600 nm tog sem hend­ir þess­um þunga bíl áfram sem fis væri, og með al­menni­legu vél­ar­hljóði í ofanálag. Það er í einu orði sagt unun að aka þess­um bíl.

Fantagóður val­kost­ur

Það er ómögu­legt að segja hversu lengi stjórn­völd hér á landi hafa núll­flokk­inn við lýði í tollaf­greiðslu bíla sem stinga má í sam­band, en við þá sem eiga til þess pen­ing segi ég: flýtið yður að festa kaup á bíl sem fæst á spott­prís und­ir þess­um kring­um­stæðum. Ég hef áður mært Mercedes-Benz GLE Plug-In Hybrid á þess­um vett­vangi sem og Porsche Cayenne, og Audi Q7 e-tron er í sama klassa. Þessi jeppi hef­ur nán­ast allt til að bera sem þú get­ur óskað þér í bíl, á verði sem er ein­stak­lega hag­stætt miðað við hvað þú færð fyr­ir pen­ing­inn.

http://www.mbl.is/bill/frettir/2016/08/30/rafmagnadur_draumur_fra_audi/