Fara í efni

Porsche Cayenne lækkar um miljón

Fréttir

„Hjá Bílabúð Benna er lögð áhersla á að lækka verð á bílum þegar styrking krónunnar gefur svigrúm til þess,“ segir Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi.

Bílabúð Benna hefur kynnt lækkun á Porsche Cayenne Diesel sem fyrirtækið er umboðsaðili fyrir. Þessi margverðlaunaði sportjeppi lækkar um eina milljón og kostar nú 13.950 þús. kr.

„Við vekjum athygli á að Porsche Cayenne er afar vel búinn. Hann er til að mynda með leðurinnréttingu, rafdrifin framsæti með hita, tvöfalda sjálfvirka miðstöð með loftkælingu, fullkomið hljómkerfi, sport leðurstýri, skriðstilli (Cruse Control), Led dagljósabúnað og 18” álfelgur, o.m.fl. Þetta eru kostir sem oftar en ekki þarf að borga aukalega fyrir hjá framleiðendum lúxusbíla.“