Í júní mánuði voru nýskráðir 390 rafbílar og þar af nýskráði Brimborg 55 Polestar rafbíla sem gerir hann að mest selda rafbílnum í júní með 14,1% markaðshlutdeild á rafbílamarkaði. Brimborg afhenti fyrstu Polestar 2 rafbílana í febrúar á þessu ári og fyrstu sex mánuði ársins hafa 173 Polestar 2 rafbílar verið afhentir og er Polestar fjórði mest seldi rafbíllinn á árinu.
Heildarmarkaður fólksbíla í júní var 2424 og er hlutdeild rafbíla því 16,1% af heildarmarkaði. Ef kaup bílaleiga eru dregin frá þá er heildarmarkaður fólksbíla í júní 764 og rafbílar 364 eða 47,6% af heildarmarkaði.
Polestar er sænskur framleiðandi hágæða rafbíla með afburða aksturseiginleika en Brimborg kynnti Polestar bílamerkið á Íslandi í nóvember 2021 og þá um leið var kynntur Polestar 2, rafknúinn hlaðbakur. Um miðjan júní opnaði Brimborg rafbílasalinn Polestar Reykjavík og í október á þessu ári mun Brimborg kynna Polestar 3, rafknúinn jeppa.