Brimborg frumsýnir glæsilega bílalínu Peugeot næstkomandi laugardag milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Peugeot á Íslandi að Bíldshöfða 8, Reykjavík og hjá Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5.
Frumsýningartilboð
Breið lína Peugeot uppfyllir kröfur ólíkra neytenda. Allt frá hinum smáa Peugeot 108 og upp í 7 sæta Peugeot 5008 sem er einstaklega rúmgóður og notendavænn. Til viðbótar við fólksbílalínuna er Peugeot Partner sendibíllinn sem er notendavænn vinnuþjarkur sem hægt er að stóla á. Öll bílalína Peugeot er í boði hjá Brimborg og í tilefni frumsýningarinnar verða frumsýningartilboð á öllum nýjum Peugeot með meiri búnaði en áður.
Lægra varahlutaverð og öflug verkstæðisþjónusta
Brimborg hefur hafið innflutning á varahlutum í Peugeot bíla og náð að lækka varahlutaverð með hagstæðum innkaupum beint frá framleiðanda. Peugeot varahlutir hjá Brimborg eru hágæða varahlutir sem framleiddir eru samkvæmt ströngum gæðastöðlum. Brimborg býður upp á verkstæðisþjónustu og ábyrgðaviðgerðir fyrir alla Peugeot bíla, hvort sem þeir eru fluttir inn af Brimborg eða öðrum.
Reynsluakstur í boði
Við hvetjum áhugasama til að koma og prófa nýjan Peugeot hjá Brimborg laugardaginn 20. ágúst milli kl. 12 og 16.