Aðgerðir spænsku ríkisstjórnarinnar undir yfirskriftinni „bílaförgun með aðstoð stjórnvalda“ ganga út á að fækka gömlum, óöruggum og mengandi bílum í umferð. Bíleigendur fá greiddar tvö þúsund evrur, helminginn frá stjórnvöldum og helminginn frá bílaframleiðanda, ef gömlum bíl er fargað og nýr sparneytnari bíll keyptur í staðinn.
Alls seldust 55.436 bílar á Spáni í janúar en þetta er fimmti mánuðurinn í röð þar sem bílasala eykst í landinu. Spænsk stjórnvöld framlengdu aðgerðirnar nú í janúar og hafa varið 465 milljónum evra til verkefnisns.
„Þetta sýnir að með stuðningi stjórnvalda má auka bílasöluna talsvert. Aðgerðirnar á Spáni miða að því að auka hagvöxt í landinu og koma til móts við almenning og auðvelda fólki að skipta í nýjan bíl. Fjölmörg lönd styðja við endurnýjun bíla sem er auðvitað mjög mikilvægt til að viðhalda bílaflotanum ungum og öruggum. Með aukinni bílasölu aukast tekjur ríkissjóðs, hagvöxtur eykst og fólk eignast nýja og hagkvæmari bíla sem eru eyðslugrennri, umhverfismildari og öruggari,“ segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins um aðgerðirnar á Spáni.