Fara í efni

Nýskráðir fólksbíla í júlí 2026

Fréttir

Í lok júlí höfðu 8.651 nýir fólksbílar verið nýskráðir það sem af er ári. Það er 6,1% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Þrátt fyrir fækkun milli ára eru nýskráningar fleiri en á sama tímabili árin 2020, 2021 og 2024.

*janúar-júlí

Rafmagn er áfram algengasti orkugjafi nýskráðra fólksbíla og er hlutdeild rafmagnsbíla tæplega 44% í nýskráningum. Þar á eftir koma tvinnbílar (e. hybrid) og síðan tengiltvinnbílar (e. PHEV). Nýskráningar hefðbundinna bensín- og dísilfólksbíla halda áfram að vera á undanhaldi og er samanlögð hlutdeild þeirra innan við 12% af nýskráningum.

*janúar-júlí

Líkt og áður hefur verið fjallað um í umfjöllun Bílgreinasambandsins um nýskráningar þá voru gerðar umfangsmiklar breytingar á vörugjöldum á ökutæki um áramótin. Breytingarnar leiddu til þess að óvenjumikill fjöldi fólksbíla var fluttur til landsins undir lok síðasta árs áður en nýju gjöldin tóku gildi. Hluti þessara bíla var síðan nýskráður þegar leið á yfirstandandi ár. Líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur innflutningur færst nær nýskráningum á undanförnum mánuðum þótt nýskráningar fólksbíla hafi áfram verið meiri en innflutningur í júní líkt og mánuðina þar á undan.

Heimild: Hagstofa Íslands og Samgöngustofa

Ökutækjaleigur með flestar nýskráningar

Sé litið til nýskráninga eftir kaupendahópum eru ökutækjaleigur umfangsmesti hópurinn. Þær hafa nýskráða samanlagt 4.598 nýja fólksbíla það sem af er ári sem er 11,1% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra.

Tvinnbílar eru algengastir meðal nýskráðra bílaleigubíla og eru um 37% þeirra. Þar á eftir koma tengiltvinnbílar með 30% hlutdeild. Hlutdeild rafmagnsbíla hjá bílaleigum hefur verið að aukast samanborið við síðastliðin tvö ár og er um 14%.

*janúar-júlí

Rafbílar yfir 80% af nýskráningum einstaklinga

Einstaklingar hafa nýskráð samanlagt 2.991 nýja fólksbíla það sem af er ári. Það er tæplega 3% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra.

Rafmagnsbílar eru yfir 80% af nýskráningum einstaklinga og hefur hlutdeild þeirra aldrei verið hærri. Tengiltvinnbílar eru næstalgengastir með tæplega 10% hlutdeild. Hlutdeild þeirra hefur minnkað milli ára en hún hefur verið um 20% undanfarin tvö ár.

*janúar-júlí

Rafmagnsbílar einnig ráðandi hjá fyrirtækjum

Fyrirtæki, önnur en ökutækjaleigur, hafa nýskráð samanlagt 1.061 nýja fólksbíla það sem af er ári. Rafmagnsbílar eru í miklum meirihluta eða um 70% nýskráninga og hefur hlutdeild þeirra aldrei verið hærri hjá kaupendahópnum. Þar á eftir koma tengiltvinnbílar með 14% hlutdeild í nýskráningum sem er lægri hlutdeild en undanfarin tvö ár þegar hún var í kringum 20%.

*janúar-júlí

Kia algengasta tegundin

Kia er algengasta nýskráða tegundin það sem af er ári, með 1.186 nýja fólksbíla og 13,7% hlutdeild. Toyota kemur þar á eftir með 962 nýja fólksbíla og 11,1% hlutdeild og síðan Tesla með 832 nýja fólksbíla og 9,6% hlutdeild.