Fara í efni

Nýskráðir nýir fólksbílar í mars 2026

Fréttir

Nýskráðir nýir fólksbílar í mars 2026

Alls hafa 3.483 nýir fólksbílar verið nýskráðir það sem af er ári, þar af 1.283 í mars. Nýskráningar það sem af er ári hafa aukist um 53% miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin skýrist að stórum hluta af meiri nýskráningum hjá ökutækjaleigum á fyrsta ársfjórðungi en oft áður. Á sama tíma benda tölur um innflutning til þess að hluti þeirra fólksbíla sem hafa verið nýskráðir það sem af er ári hafi verið fluttir til landsins fyrir áramót, áður en breytingar á vörugjaldi á ökutæki tóku gildi.

*Janúar-mars

Þegar nýskráningar eru skoðaðar eftir orkugjöfum má sjá að rafmagnsbílar voru algengasti flokkurinn og eru tæplega þriðjungur allra nýskráninga það sem af er ári. Þar á eftir koma tengiltvinnbílar (e. PHEV) og tvinnbílar (e. Hybrid). Á sama tíma hafa hefðbundnir bensín- og dísilbílar verið áfram á undanhaldi og nema nú samanlagt um 8% af nýskráningum það sem af er ári.

*Janúar-mars

Kia var mest skráða bíltegundin með samanlagt 548 nýja fólksbíla sem nemur 16% hlutdeild í nýskráningum fólksbíla það sem af er ári. Þar á eftir kom bíltegundin Hyundai með 473 nýja fólksbíla sem er 14% hlutdeild og síðan Dacia með 391 nýja fólksbíla og 11% hlutdeild.

Einstaklingar nýskráðu alls 967 nýja fólksbíla það sem af er ári sem er 14% samdráttur samanborið við sama tímabil í fyrra. Orkuskipti heimilanna halda þó áfram af krafti en rafmagn var algengasti orkugjafinn með 74% hlutdeild. Þar á eftir komu tengiltvinnbílar með 17% hlutdeild.

*Janúar-mars

*Janúar-mars

Fyrirtæki, að undanskildum bílaleigum, nýskráðu samanlagt 371 nýja fólksbíla það sem af er ári sem er 13% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra. Líkt og hjá heimilunum var rafmagn algengasti orkugjafinn með 59% hlutdeild og þar á eftir komu tengiltvinnbílar með 21% hlutdeild.

*Janúar-mars

Ökutækjaleigur voru áfram helsti drifkrafturinn á bak við aukningu í nýskráningum það sem af er ári. Alls voru nýskráðir 2.144 nýir bílaleigubílar á tímabilinu sem er 162% aukning frá sama tímabili í fyrra. Sú aukning endurspeglar þó að mestu tímasetningaráhrif vegna breytinga á vörugjaldi um áramótin fremur en að vera vísbending um aukna eftirspurn eftir bílaleigubílum. Að jafnaði er fyrsti ársfjórðungur fremur rólegur í nýskráningum bílaleigubíla en meirihluti nýskráninga fer vanalega fram á tímabilinu apríl til júní. Flestir nýskráðir bílaleigubílar voru tvinnbílar með 42% hlutdeild og síðan tengiltvinnbílar með 39% hlutdeild.

*Janúar-mars