Fara í efni

Nýskráðir nýir fólksbílar í maí 2026

Fréttir

Nýskráðir nýir fólksbílar í maí 2026

Á fyrstu fimm mánuðum ársins hafa alls verið nýskráðir 6.063 nýir fólksbílar, sem er 3,6% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Nýskráningar það sem af er ári virðist að stórum hluta tengjast auknum innflutningi bifreiða undir lok árs 2025 í aðdraganda breytinga á vörugjöldum.


Janúar–maí

Samanlagt voru innfluttir um 3.500 fleiri fólksbílar í nóvember og desember á síðasta ári en sem nam nýskráningum í sömu mánuðum. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins snerist staðan við og voru nýskráningar meira en 2.500 fleiri en innfluttir fólksbílar. Ekki liggja enn fyrir innflutningstölur fyrir maí og því ekki hægt að segja til um hversu margir bílar hafa þegar verið nýskráðir umfram innflutning það sem af er ári.

Heimild: Hagstofa Íslands og Samgöngustofa

Nýskráningar eftir orkugjöfum

Rafmagnsbílar eru áfram stærsti flokkur nýskráninga og hefur hlutdeildin verið að aukast eftir því sem líður á árið. Tvinn- og tengiltvinnbílar koma þar á eftir, en nýskráning bensín- og dísilbíla heldur áfram að dragast saman. Þessi þróun endurspeglar áframhaldandi orkuskipti í bílaflota landsins.


Janúar–maí

Nýskráningar eftir kaupendahópum

Meira en helmingur nýskráninga það sem af er ári eru bílaleigubílar. Ökutækjaleigur hafa nú þegar nýskráð 3.443 nýja fólksbíla sem er 3,2% aukning samanborið við sama tímabili í fyrra. Óvíst er hvernig þróunin verður þegar líður á árið í ljósi þess að nýskráningar hjá ökutækjaleigum hófust fyrr en vanalega. Tvinnbílar eru algengastir og þar á eftir tengiltvinnbílar með samanlagt nálægt 70% hlutdeild í nýskráningum ökutækjaleiga.

Janúar–maí

Nýskráningar einstaklinga hafa á sama tíma dregist lítillega saman milli ára. Alls hafa einstaklingar nýskráð 1.909 nýja fólksbíla sem nemur 2,6% samdrætti milli ára. Rafmagnsbílar eru langalgengastir hjá einstaklingum og voru um 79% af nýskráningum og þar á eftir komu tengiltvinnbílar með um 12% hlutdeild. Heimilin halda því áfram að vera í fararbroddi þegar kemur að orkuskiptum ökutækja.

Janúar–maí

Fyrirtæki, önnur en ökutækjaleigur, hafa nýskráð 710 nýja fólksbíla sem er 27,5% aukning milli ára. Um 66% nýskráninga voru rafmagnsbílar og þar á eftir komu nýskráningar tengiltvinnbíla sem voru um 16%.


Janúar–maí

Kia mest skráða bíltegundin

Kia var mest skráða bíltegundin það sem af er ári með samanlagt 897 nýja fólksbíla sem jafngildir 14,8% hlutdeild í nýskráningum. Þar á eftir kom bíltegundin Toyota með 642 nýja (10,6% hlutdeild) og síðan Tesla með 597 nýja fólksbíla (9,8% hlutdeild).