Fara í efni

Nýskráðir nýir fólksbílar í júní 2026

Fréttir

Á fyrri helmingi árs hafa alls verið nýskráðir 7.502 nýir fólksbílar, sem er 4,9% samdráttur miðað við sama tímabil árið áður. Þróun nýskráninga, einkum fyrstu mánuði ársins, virðist að stórum hluta tengjast auknum innflutningi fólksbíla undir lok árs 2025 í aðdraganda breytinga á vörugjöldum.

Janúar–júní

Samanlagt voru innfluttir um 3.500 fleiri fólksbílar í nóvember og desember á síðasta ári en sem nam nýskráningum í þeim mánuðum. Á fyrstu fimm mánuðum ársins snerist staðan við og voru nýskráningar meira en 2.700 fleiri en innfluttir fólksbílar. Það lítur því út fyrir að áhrif aukins innflutnings fyrir áramót séu að fjara út og meginhluti þeirra fólksbíla sem fluttir voru inn fyrir áramót verði komin í umferð á næstu vikum.

Heimild: Hagstofa Íslands og Samgöngustofa

Nýskráningar eftir orkugjöfum

Rafmagnsbílar eru áfram stærsti flokkur nýskráninga. Tengiltvinnbílar og tvinnbílar koma þar á eftir, en nýskráning bensín- og dísilbíla heldur áfram að dragast saman milli ára. Þróunin endurspeglar áframhaldandi orkuskipti bílaflotans, þar sem hlutur vistvænni orkugjafa heldur áfram að vera umtalsverður í nýskráningum.

Janúar–júní

Nýskráningar eftir kaupendahópum

Ökutækjaleigur nýskráðu 4.070 nýja fólksbíla á fyrri helmingi ársins sem er 12,1% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Líkt og fjallað hefur verið um í fyrri fréttatilkynningum voru nýskráningar ökutækjaleiga óvenju miklar í upphafi árs vegna breytinga á vörugjöldum um áramótin en öllu jafna eru flestar nýskráningar ökutækjaleiga að eiga sér stað á tímabilinu maí og júní. Nú þegar þeir mánuðir eru að baki má sjá að það er fækkun í nýskráningum ökutækjaleiga á milli ára.

Tvinnbílar eru algengastir hjá ökutækjaleigum og þar á eftir tengiltvinnbílar með samanlagt 70% hlutdeild í nýskráningum. Þá hefur hlutdeild rafmagnsbíla verið að aukast milli mánaða og nemur nú um 13% af nýskráningum ökutækjaleiga það sem af er ári.

Janúar–júní

Einstaklingar hafa nýskráð 2.507 nýja fólksbíla á fyrri helmingi ársins sem er 0,9% aukning milli ára. Rafmagnsbílar eru langalgengastir meðal einstaklinga og eru um 81% af nýskráningum. Þar á eftir koma tengiltvinnbílar með 10% hlutdeild. Þetta bendir til þess að heimilin séu áfram leiðandi í orkuskiptum bílaflotans.

Janúar–júní

Fyrirtæki, önnur en ökutækjaleigur, hafa nýskráð 924 nýja fólksbíla sem er 19,5% aukning milli ára. Um 69% þessara nýskráninga voru rafmagnsbílar. Fyrirtækin taka virkan þátt í orkuskiptum bílaflotans.

Janúar–júní

Kia mest skráða bíltegundin

Kia var mest skráða bíltegundin á fyrri helmingi ársins með samanlagt 1.067 nýja fólksbíla sem jafngildir 14,2% hlutdeild í nýskráningum. Þar á eftir kom Tesla með 831 nýja fólksbíla (11,1% hlutdeild) og Toyota með 818 nýja fólksbíla (10,9% hlutdeild).