Fara í efni

Nýskráðir fólksbílar í janúar 2026

Fréttir

Í janúar voru nýskráðir 1.385 nýir fólksbílar sem jafngildir 132% aukningu miðað við janúar 2025. Aukningin er að stórum hluta drifin áfram af ökutækjaleigum. Um áramótin tóku gildi umtalsverðar breytingar á vörugjaldi á ökutæki sem varð til þess að veruleg aukning varð í innflutningi ökutækja undir árslok. Hluti þeirra bifreiða sem fluttar voru inn fyrir gildistöku breytinganna var þó ekki nýskráður á þeim tíma heldur má búast við að sá hluti verði nýskráður á fyrri hluta þessa árs. Það er líklegt að aukning nýskráninga í janúar endurspegli að stórum hluta þessa þróun, þ.e. komi til vegna aukins innflutnings á síðasta ári fremur en hún sé merki um verulega aukningu í eftirspurn ökutækjaleiga svo snemma á árinu.

*Janúar

Þegar litið er til orku- og driflausna þá voru tengiltvinnbílar (e. PHEV) algengastir meðal nýskráðra fólksbíla og þar á eftir tvinnbílar (e. Hybrid). Þessir tveir flokkar ökutækja urðu fyrir mestum áhrifum af vörugjaldabreytingunum um áramótin. Bílgreinasambandið hefur sérstaklega bent á að breytingarnar muni hafa verulega neikvæð áhrif á tengiltvinnbíla. Það helgast annars vegar af verulegri hækkun vörugjalds og hins vegar af breytingum á aðferðafræði við prófun ökutækja sem leiðir til hærri skattskyldrar losunar og þar með aukinnar skattbyrði kaupenda.

*Janúar

Mest skráða einstaka bíltegundin var Hyundai með samanlagt 415 nýja fólksbíla sem nemur 30% hlutdeild í nýskráningum fólksbíla í janúar. Þar á eftir kom bíltegundin Dacia með 177 nýja fólksbíla sem er 13% hlutdeild og síðan Kia með 135 nýja fólksbíla og 10% hlutdeild.

Einstaklingar nýskráðu samanlagt 293 nýja fólksbíla í janúar sem er 10% samdráttur samanborið við janúar á síðasta ári. Algengasti orkugjafinn var rafmagn með 43% hlutdeild og þar á eftir komu tengiltvinnbílar með 38% hlutdeild.

*Janúar

Fyrirtæki, að undanskildum bílaleigum, nýskráðu samanlagt 129 nýja fólksbíla í janúar sem er 12% aukning samanborið við janúar á síðasta ári. Líkt og í tilviki heimilanna var rafmagn algengasti orkugjafinn með 35% hlutdeild og þar á eftir komu tengiltvinnbílar með 33% hlutdeild.

*Janúar

Ökutækjaleigur voru helsti drifkraftur þegar kemur að aukinni nýskráningu í janúar. Samanlagt voru nýskráðir 963 nýir bílaleigubílar í janúar sem er 517% aukning milli ára. Flestir þessara fólksbíla voru tengiltvinnbílar, eða um helmingur, og þar á eftir tvinnbílar.

*Janúar

Líkt og Bílgreinasambandið hefur ítrekað fjallað um var töluverður innflutningur á fólksbílum í lok árs 2025. Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega þróun innflutnings og nýskráninga fólksbíla árin 2023–2025. Alla jafna fylgjast innflutningur og nýskráningar fólksbíla nokkuð, þ.e. þegar meira er flutt inn af fólksbílum er einnig meira nýskráð og öfugt. Það er þó ekki algilt. Til að mynda má sjá að í janúar árið 2023 voru nýskráningar fleiri en sem nam innflutningi sem kann að skýrast af auknum innflutningi í árslok 2022 vegna tilkomu 5% lágmarksvörugjalds sem nú hefur verið afnumið. Að sama skapi var innflutningur í árslok 2025 mun meiri en sem nam nýskráningum á sama tímabili sem má rekja til hækkunar á vörugjaldi um áramótin. Þetta sýnir hvernig breytingar á skattlagningu geta skapað hvata til að flýta innflutningi jafnvel þótt nýskráningar eigi sér ekki stað nær samhliða.

Heimild: Hagstofa Íslands og Samgöngustofa