Nýskráðir nýir fólksbílar í febrúar 2026
Í janúar og febrúar voru nýskráðir alls 2.200 nýir fólksbílar sem jafngildir 76% aukningu miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin milli ára er að stórum hluta drifin áfram af ökutækjaleigum. Þá benda tölur um innflutning til þess að hluti nýskráðra fólksbíla það sem af er ári hafi verið fluttur inn fyrir áramót en þá tóku gildi umtalsverðar breytingar á vörugjaldi á ökutæki. Þetta má sjá á mynd neðst í fréttatilkynningunni.

*Janúar-febrúar
Þegar litið er til orku- og driflausna þá voru tengiltvinnbílar (e. PHEV) algengastir meðal nýskráðra fólksbíla og þar á eftir tvinnbílar (e. Hybrid). Þessir tveir flokkar ökutækja urðu fyrir mestum áhrifum af vörugjaldabreytingunum um áramótin. Það helgast annars vegar af verulegri hækkun vörugjalds og hins vegar af breytingum á aðferðafræði við prófun tengiltvinnbíla sem leiðir til hærri skattskyldrar losunar og þar með aukinnar skattbyrði kaupenda.

*Janúar-febrúar
Mest skráða einstaka bíltegundin var Hyundai með samanlagt 459 nýja fólksbíla sem nemur 21% hlutdeild í nýskráningum fólksbíla það sem af er ári. Þar á eftir kom bíltegundin Dacia með 361 nýja fólksbíla sem er 16% hlutdeild og síðan Kia með 260 nýja fólksbíla og 11% hlutdeild.
Einstaklingar nýskráðu samanlagt 534 nýja fólksbíla það sem af er ári sem er 15% samdráttur samanborið við sama tímabil í fyrra. Algengasti orkugjafinn var rafmagn með 61% hlutdeild og þar á eftir komu tengiltvinnbílar með 26% hlutdeild.

*Janúar-febrúar
Fyrirtæki, að undanskildum bílaleigum, nýskráðu samanlagt 243 nýja fólksbíla það sem af er ári sem er 31% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra. Líkt og í tilviki heimilanna var rafmagn algengasti orkugjafinn með 53% hlutdeild og þar á eftir komu tengiltvinnbílar með 24% hlutdeild.

*Janúar-febrúar
Ökutækjaleigur voru helsti drifkrafturinn á bak við aukna nýskráningu það sem af er ári. Samanlagt voru nýskráðir 1.423 nýir bílaleigubílar á tímabilinu sem er 223% aukning frá sama tímabili í fyrra. Aukningin er að mestu leyti tímasetningaráhrif vegna breytinga á vörugjaldi um áramótin en ekki vísbending um aukna eftirspurn eftir bílaleigubílum. Að jafnaði eru janúar og febrúar fremur rólegir mánuðir í nýskráningum bílaleigubíla en stærstur hluti nýskráninga fer vanalega fram á tímabilinu apríl til júní. Flestir þessara fólksbíla voru tengiltvinnbílar og tvinnbílar og var hlutdeild beggja flokka 42%.

*Janúar-febrúar
Líkt og Bílgreinasambandið hefur áður fjallað um var töluverður innflutningur á fólksbílum í lok árs 2025. Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega þróun innflutnings og nýskráninga fólksbíla frá ársbyrjun 2023. Alla jafna fylgjast innflutningur og nýskráningar fólksbíla nokkuð, þ.e. þegar meira er flutt inn af fólksbílum er einnig meira nýskráð og öfugt. Það er þó ekki algilt. Á myndinni má sjá verulegan innflutningi í árslok 2025 en á sama tíma eru nýskráningar umtalsvert færri. Þetta snýst svo við í janúar 2026 þegar innflutningur er lítill miðað við fjölda nýskráninga sem bendir til þess að í janúar hafi verið nýskráðir fólksbílar sem voru fluttir inn í lok síðasta árs. Það verður áhugavert að sjá hversu lengi áhrifin munu vara inn á árið. Þetta sýnir hvernig breytingar á skattlagningu geta skapað hvata til að flýta innflutningi jafnvel þótt nýskráningar eigi sér ekki stað nær samhliða.

Heimild: Hagstofa Íslands og Samgöngustofa