Nýskráðir nýir fólksbílar í apríl 2026
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins hafa alls verið nýskráðir 4.516 nýir fólksbílar, sem er 21% aukning miðað við sama tímabil árið áður. Þróun nýskráninga það sem af er ári virðist að stórum hluta tengjast auknum innflutningi bifreiða undir lok árs 2025 í aðdraganda breytinga á vörugjöldum.

Janúar–apríl
Samanlagt voru innfluttir um 3.500 fleiri fólksbílar í nóvember og desember á síðasta ári en sem nam nýskráningum í þeim mánuðum. Á fyrsta ársfjórðungi snerist staðan við og voru nýskráningar meira en 2.000 fleiri en innfluttir fólksbílar. Ekki liggja enn fyrir innflutningstölur fyrir apríl og því ekki hægt að segja til um hversu margir bílar hafa þegar verið nýskráðir umfram innflutning það sem af er ári. Ljóst er þó að það styttist í að sá fjöldi sem fluttur var inn fyrir áramót verði að fullu kominn fram í nýskráningum.

Heimild: Hagstofa Íslands og Samgöngustofa
Nýskráningar eftir orkugjöfum
Rafmagnsbílar eru áfram stærsti flokkur nýskráninga. Tengiltvinnbílar og tvinnbílar koma þar á eftir, en nýskráning bensín- og dísilbíla heldur áfram að dragast saman. Þessi þróun endurspeglar áframhaldandi orkuskipti í bílaflota landsins, þar sem hlutur vistvænni orkugjafa heldur áfram að vera umtalsverður í nýskráningum.

Janúar–apríl
Nýskráningar eftir kaupendahópum
Ökutækjaleigur eru stærsti drifkraftur nýskráninga það sem af er ári. Ekki er þó um að ræða aukningu í eftirspurn heldur hafa ökutækjaleigur verið að nýskrá bifreiðar fyrr á árinu en áður. Það má rekja til breytinga á vörugjöldum um áramót, sem leiddu til þess að stór hluti nýrra bílaleigubíla fyrir árið í ár var keyptur í lok árs 2025.
Ökutækjaleigur hafa nýskráð 2.611 nýja fólksbíla sem er 48% aukning samanborið við sama tímabili í fyrra. Óvíst er hvernig þróunin verður þegar líður á árið í ljósi þess að nýskráningar hjá þessum hópi hófust fyrr en vanalega. Tvinnbílar eru algengastir og þar á eftir tengiltvinnbílar með samanlagt nálægt 80% hlutdeild í nýskráningum ökutækjaleiga.

Janúar–apríl
Nýskráningar einstaklinga hafa á sama tíma dregist saman milli ára. Alls hafa einstaklingar nýskráð 1.374 nýja fólksbíla sem nemur 10% samdrætti milli ára. Á síðustu sex árum voru nýskráningar einstaklinga aðeins færri árið 2024.
Rafmagnsbílar eru langalgengastir hjá einstaklingum og nema um 76% af nýskráningum sem bendir til þess að heimilin séu áfram í fararbroddi í orkuskiptum.

Janúar–apríl
Fyrirtæki, önnur en ökutækjaleigur, hafa nýskráð 530 nýja fólksbíla sem er 24% aukning milli ára. Meira en 60% nýskráninga voru rafmagnsbílar.

Janúar–apríl
Kia mest skráða bíltegundin
Kia var mest skráða bíltegundin það sem af er ári með samanlagt 654 nýja fólksbíla sem jafngildir 14,5% hlutdeild í nýskráningum. Þar á eftir kom bíltegundin Hyundai með 503 nýja fólksbíla (11% hlutdeild) og síðan Toyota með 416 nýja fólksbíla (9% hlutdeild).