FRÉTTATILKYNNING Nýskráðir fólksbílar í mars 2024 Skráning nýrra fólksbíla dróst verulega saman í mars samanborið við mars í fyrra. Alls voru skráðir 532 nýir fólksbílar nú í mars en voru 1.832 í sama mánuði í fyrra. Er það samdráttur upp á 71,0%. *Tölur eru MTD Ef við horfum á skráningar það sem af er ári er samdráttur upp á 60,4% milli ára. Skráðir hafa verið 1.386 nýir fólksbílar en miðað við sama tímabil í fyrra seldust 3.500 nýir fólksbílar á fyrstu þrjá mánuðum ársins. *Tölur eru YTD Einstaklingar Nýskráningar á einstaklinga voru 234 í mánuðinum samanborið við 767 í mars í fyrra og er því samdráttur í skráningum fólksbíla á einstaklinga 69,5% milli mánaða. Það sem af er ári hafa verið skráðir 706 nýir fólksbílar á einstaklinga saman borið við 1.580 nýja fólksbíla á sama tíma í fyrra. Er það samdráttur upp á 55,3% milli ára. *Tölur eru MTD Almenn fyrirtæki Nýskráningar á almenn fyrirtæki (fyrir utan ökutækjaleigur) voru 93 nýir fólksbílar í mars samanborið við 214 á sama tíma í fyrra og er því samdráttur í skráningum til almennra fyrirtækja 56,5% milli mánaðanna. Það sem af er ári er búið að skrá 261 nýjan fólksbíl á almenn fyrirtæki samanborið við 554 fyrstu þrjá mánuði ársins í fyrra. Er það samdráttur upp á 52,9%. *Tölur eru YTD Ökutækjaleigur Ökutækjaleigur hafa skráð 205 nýja fólksbíla í mars í ár samanborið við 849 í mars í fyrra og er því samdráttur á skráningum fólksbíla í ökutækjaleigur 75,9% samanborið við mars í fyrra. Það sem af er ári hafa verið skráðir 418 nýir fólksbílar á ökutækjaleigu saman borið við 1.364 á sama tímabili fyrir ári sem er samdráttur upp á 69,4%. *Tölur eru MTD Orkugjafar Hlutfall rafbíla er hæst þegar skoðaðar eru nýskráningar fólksbíla í mars eða 28,6% en einnig hefur mest hefur dregið úr skráningum þeirra eða um 83,7% milli mars í ár og mars fyrir ári. Næst á eftir eru nýskráningar dísel fólksbíla sem eru 26,5% af skráningum í mars í ár. Hafa skráningar þeirra dregist töluvert minna saman eða um 30,5% milli mars í ár og mars í fyrra. Þar á eftir koma svo skráningar tengiltvinnbíla sem voru 22% í mars og er samdráttur skráninga þeirra milli mars í ár og mars í fyrra 30,8%. *Tölur eru MTD Í mars var mest selda tegundin Dacia með 71 skráðan fólksbíl, þar á eftir kemur Hyundai með 57 selda fólksbíla og þriðja mest selda tegundin í mars var KIA og Tesla með 51 bíl hvort merki skráða. Það sem af er ári er mest selda tegundin Toyota með 15,9% markaðshlutdeild, Dacia það á eftir með 10,1% og þriðja mest selda tegundin í ár er KIA með 8,1% markaðshlutdeild. *tölur til og með 31. mars 2024 |
Nýskráðir fólksbílar í mars 2024
01.04.2024
Fréttir