Nýskráðir fólksbílar í maí 2025
Alls voru nýskráðir 2.127 nýir fólksbílar í maí. Það er 5,9% aukning á nýskráningum samanborið við maí á síðasta ári. Mánuðurinn er ávallt stór þegar kemur að nýskráningum bílaleigubíla og voru um 74% nýrra fólksbíla í maí skráðir sem bílaleigubílar.
*Tölur fyrir maí
Sé litið til nýskráningar nýrra fólksbíla það sem af er ári námu þær samanlagt 5.854 sem er 23,1% aukning frá sama tímabili í fyrra.
*Tölur eru fyrir janúar-maí
Það sem af er ári hefur Kia verið mest skráða bíltegundin með 1.100 nýskráða nýja fólksbíla, sem samsvarar um 19% af öllum nýskráðum fólksbílum. Toyota er með næst flestar nýskráningar með 732 nýskráða fólksbíla og 12,5% hlutdeild. Þar á eftir er Hyundai með 476 nýskráningar fólksbíla og 8,1% hlutdeild.
Rafmagn er vinsælasti orkugjafinn og hafa verið nýskráðir 1.664 rafmagnsbílar það sem af er ári sem er um 28,4% af öllum nýjum fólksbílum. Næst á eftir koma tvinnbílar (e. hybrid) en samtals hafa verið nýskráðir 1.538 slíkir fólksbílar það sem af er ári sem nemur 26,3% af nýskráðum fólksbílum.
*Tölur eru fyrir janúar-maí
Einstaklingar hafa verið skráðir fyrir alls 1.959 nýjum fólksbílum það sem af er ári og jukust nýskráningar um 53,3% milli ára.
*Tölur eru fyrir janúar-maí
Meira en helmingur þessara bíla voru rafmagnsbílar eða 59%. Hlutfallið hefur aukist frá síðasta ári og er orðið svipað og á sama tímabili 2022-2023 þegar nýskráningar rafmagnsbíla voru sem mestar. Tengiltvinnbílar voru næst algengastir með 22% hlutdeild. Samanlögð hlutdeild rafmagns- og tengiltvinnbíla nam 81% af nýskráningum einstaklinga.
*Tölur eru fyrir janúar-maí
Almenn fyrirtæki (að undanskildum ökutækjaleigum) hafa nýskráð 557 fólksbíla það sem af er ári. Það er um 11,8% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra. Rafmagn var algengasti orkugjafinn hjá almennum fyrirtækjum, með 51% hlutdeild.
*Tölur eru fyrir janúar-maí
Ökutækjaleigur hafa nýskráð flesta fólksbíla það sem af er ári eða samanlagt 3.337 nýja fólksbíla. Það þýðir að meira helmingur allra nýskráðra fólksbíla það sem af er ári voru bílaleigubílar. Tvinnbílar (e. hybrid) voru algengastir með 38% hlutdeild af nýskráðum bílaleigubílum og rafmagnsbílar voru óalgengastir með 6,7% hlutdeild.
*Tölur eru fyrir janúar-maí