Fara í efni

Nýskráðir fólksbílar í júní 2025

Fréttir

Á fyrri helmingi ársins voru alls 7.886 nýir fólksbílar skráðir, þar af 2.032 fólksbílar í júnímánuði. Þetta jafngildir 24,1% aukningu miðað við sama tímabil í fyrra.

*Janúar-júní

Nýskráning rafmagnsbíla hefur tekið við sér eftir verulegan samdrátt á síðasta ári. Það sem af er ári hafa 2.283 nýir rafmagnsfólksbílar verið skráðir sem jafngildir tæplega 140% aukningu samanborið við sama tímabil í fyrra. Fjölgun rafmagnsbíla hefur gengt lykilhlutverki í þeirri aukningu sem hefur orðið í nýskráningum fólksbíla á milli ára en á sama tíma hefur nýskráningum hefðbundinna bensín- og dísilbíla fækkað. 

Þrátt fyrir umtalsverða fjölgun nýskráðra rafmagnsbíla hefur hlutdeild þeirra enn ekki náð sömu hæðum og árið 2023 þegar hún var rúmlega 38% á fyrri árshluta. Rafmagnsbílar eru þó stærsti einstaki orkugjafinn með 29% hlutdeild af öllum nýskráðum fólksbílum það sem af er ári. Á eftir rafmagnsbílum komu tvinnbílar (e. hybrid) með 25% hlutdeild og tengiltvinnbílar með 22%. Hlutdeild bensín- og dísilbíla heldur áfram að dragast saman og nam samanlagt 24% á fyrri hluta árs.

*Janúar-júní

Ef nýskráningar eru skoðaðar eftir kaupendahópum sést að mesta aukningin milli ára var hjá einstaklingum. Á fyrri hluta árs voru samtals skráðir 2.484 nýir fólksbílar á einstaklinga sem jafngildir 52,5% aukningu milli ára.

*Janúar-júní

Meira en helmingur umræddra fólksbíla voru rafmagnsbílar eða um 60%. Samanlagt var hlutdeild rafmagns- og tengitvinnbíla yfir 80% af nýskráningum fyrri hluta árs.

*Janúar-júní

Alls voru skráðir 773 nýir fólksbílar á almenn fyrirtæki (að undanskildum ökutækjaleigum) sem er 26,3% aukning milli ára. Algengasti orkugjafinn var rafmagn en um 57% bílanna voru rafmagnsbílar og 21% tengiltvinnbílar.

*Janúar-júní

Flestir nýskráðir fólksbílar á fyrri hluta árs voru bílaleigubílar. Samanlagt voru skráðir 4.628 nýir bílaleigubílar sem jafngildir tæplega 60% af öllum nýskráðum fólksbílum. Tvinnbílar (e. hybrid) voru algengastir og þar á eftir komu tengiltvinnbílar og dísilbílar.

*Janúar-júní

Þegar horft er til einstakra bíltegunda hefur Kia verið mest skráða tegundin það sem af er ári með alls 1.490 nýskráða fólksbíla. Það jafngildir 19% af öllum nýskráðum nýjum fólksbílum á tímabilinu. Þar á eftir kom Toyota með 971 nýskráningar og 12% hlutdeild. Tesla og Dacia voru síðan hvort um sig með um 8% hlutdeild af nýskráningum.