Fara í efni

Nýskráðir fólksbílar í júlí 2025

Fréttir

Á fyrstu sjö mánuðum ársins voru nýskráðir 9.216 nýir fólksbílar, þar af voru 1.330 þeirra nýskráðir í júlímánuði. Þetta jafngildir 28,1% aukningu miðað við sama tímabil í fyrra.

A diagram with numbers and a chart

AI-generated content may be incorrect.

*Janúar-júlí

Nýskráning rafmagnsbíla hefur tekið við sér eftir verulegan samdrátt á síðasta ári. Á fyrstu sjö mánuðum ársins voru 2.825 nýir rafmagnsfólksbílar nýskráðir. Það jafngildir 134% aukningu á nýskráningu rafmagnsbíla milli ára. Tengiltvinnbílum (e. PHEV) og tvinnbílum (e. hybrid) hefur einnig fjölgað á milli ára. Á sama tíma fer nýskráningum á hefðbundnum bensín- og dísilbílum hins vegar fækkandi.

A table with numbers and letters

AI-generated content may be incorrect.

Þrátt fyrir umtalsverða fjölgun nýskráðra rafmagnsbíla hefur hlutdeild þeirra enn ekki náð sömu hæðum og árið 2023 þegar hún var rúmlega 38% á fyrstu sjö mánuðum ársins. Rafmagnsbílar voru þó stærsti einstaki orkugjafinn á fyrstu sjö mánuðum ársins með 31% hlutdeild af öllum nýskráðum fólksbílum. Á eftir rafmagnsbílum komu tvinnbílar (e. hybrid) með 25% hlutdeild og tengiltvinnbílar með 22%. Hlutdeild bensín- og dísilbíla heldur áfram að dragast saman og nam samanlagt 23%.

A graph of numbers and percentages

AI-generated content may be incorrect.

*Janúar-júlí

Ef nýskráningar eru skoðaðar eftir kaupendahópum sést að mesta aukningin milli ára var hjá einstaklingum. Á fyrstu sjö mánuðum ársins voru samtals nýskráðir 3.081 nýir fólksbílar á einstaklinga sem jafngildir 51,5% aukningu milli ára.

A graph with numbers and a bar

AI-generated content may be incorrect.

*Janúar-júlí

Meira en helmingur umræddra fólksbíla voru rafmagnsbílar eða um 61%. Samanlagt var hlutdeild rafmagns- og tengitvinnbíla yfir 80% af nýskráningum fólksbíla á fyrstu sjö mánuðum ársins hjá einstaklingum.

A graph with numbers and text

AI-generated content may be incorrect.

*Janúar-júlí

Alls voru skráðir 963 nýir fólksbílar á almenn fyrirtæki (ekki ökutækjaleigur) á fyrstu sjö mánuðum ársins sem er 33,9% aukning milli ára. Algengasti orkugjafinn var rafmagn en um 57% bílanna voru rafmagnsbílar og 23% tengiltvinnbílar.

A graph with numbers and a diagram

AI-generated content may be incorrect.

*Janúar-júlí

Flestir nýskráðir fólksbílar á fyrstu sjö mánuðum ársins voru bílaleigubílar. Samanlagt voru skráðir 5.170 nýir bílaleigubílar sem er 16,5% aukning frá sama tímabili í fyrra. Tvinnbílar (e. hybrid) voru algengastir en fæstir bílaleigubílar voru rafmagnsbílar.

A graph with numbers and a bar chart

AI-generated content may be incorrect.

*Janúar-júlí

Þegar horft er til einstakra bíltegunda hefur Kia verið mest skráða tegundin það sem af er ári með alls 1.639 nýskráða fólksbíla. Það jafngildir um 18% af öllum nýskráðum nýjum fólksbílum á tímabilinu. Þar á eftir kom Toyota með 1.097 nýskráningar og 12% hlutdeild. Dacia og Tesla voru síðan hvort um sig með rúmlega 8% hlutdeild af nýskráningum.