FRÉTTATILKYNNING Nýskráðir fólksbílar í júlí 2024 Skráning nýrra fólksbíla dróst saman í júlí í ár samanborið við júlí í fyrra. Alls voru skráðir 837 nýir fólksbílar nú í júlí en voru 1.270 í sama mánuði í fyrra. Er það samdráttur upp á 34,1%. *Tölur eru MTD Ef við horfum á skráningar það sem af er ári er samdráttur upp á 37,7% milli ára. Skráðir hafa verið 7.192 nýir fólksbílar en miðað við sama tímabil í fyrra voru skráðir 11.536 nýir fólksbílar fyrstu sjö mánuði ársins. *Tölur eru YTD Einstaklingar Nýskráningar á einstaklinga voru 404 í mánuðinum samanborið við 460 í júlí í fyrra og er því samdráttur í skráningum fólksbíla á einstaklinga 12,2% milli sömu mánaða. Það sem af er ári hafa verið skráðir 2.033 nýir fólksbílar á einstaklinga saman borið við 3.919 nýja fólksbíla á sama tíma í fyrra. Er það samdráttur upp á 48,1% milli ára.
*Tölur eru MTD Almenn fyrirtæki Nýskráningar á almenn fyrirtæki (fyrir utan ökutækjaleigur) voru 107 nýir fólksbílar í júlí samanborið við 144 á sama tíma í fyrra og er því samdráttur í skráningum til almennra fyrirtækja 25,7% milli ára. Það sem af er ári er búið að skrá 719 nýjan fólksbíl á almenn fyrirtæki samanborið við 1.353 í júlí í fyrra. Er það samdráttur upp á 46,9%. *Tölur eru MTD Ökutækjaleigur Ökutækjaleigur hafa skráð 326 nýja fólksbíla í júlí í ár samanborið við 665 á sama tíma í fyrra og er því samdráttur á skráningum fólksbíla í ökutækjaleigur 51,0% samanborið við júlí í fyrra. Það sem af er ári hafa verið skráðir 4.439 nýir fólksbílar á ökutækjaleigu saman borið við 6.259 á sama tímabili fyrir ári sem er samdráttur upp á 29,1%. *Tölur eru MTD Orkugjafar Hlutfall rafbíla er að taka við sér eftir dýfu á árinu og er hæst þegar skoðaðar eru nýskráningar fólksbíla eftir orkugjafa í júlí eða 30,0% en þó er það samdráttur upp á 43,3% borið saman við júlí í fyrra. Næst á eftir eru nýskráningar á hybrid sem er 23,5% af skráningum í júlí í ár. Hafa skráningar þeirra dregist saman um 29,9% milli júlí í ár og júlí í fyrra. Þar á eftir koma svo skráningar á tengiltvinnbílar sem var 22,6% í júlí en töluverð aukning er á skráningum þeirra milli júlí í ár og júlí í fyrra eða 58,8%. Dísel bílar voru 16,5% af skráningum fólksbíla í mánuðinum og var samdráttur á skráningum þeirra milli mánaðanna 42,7%. Fæstar skráningar voru skráðir bensínbílar eða 7,4% af þeim 837 fólksbílum sem skráðir voru í mánuðinum og samdráttur í skráningum bensínbíla milli júlí í ár og júlí í fyrra 66,7%. Fjöldi skráninga í mánuðinum samanborið við sama mánuð árinu á undan (MTD) *Tölur eru MTD Í júlí var mest skráða tegundin Toyota með 127 skráða fólksbíla eða 15,2% af skráðum fólksbílum, þar á eftir kom KIA með 113 skráða fólksbíla og 13,5% af skráðum fólksbílum. Þriðja mest skráða tegundin í júlí var Skoda með 88 fólksbíla og 10,5% hlutdeild. Það sem af er ári er mest skráða tegundin KIA með 15,2% markaðshlutdeild, Hyundai þar á eftir með 13,2% og þriðja mest skráða tegundin í ár er Toyota með 12,8% markaðshlutdeild. *tölur til og með 31. júlí 2024 |
Nýskráðir fólksbílar í júlí 2024
01.08.2024
Fréttir