Alls voru nýskráðir 1.455 nýir fólksbílar í apríl. Það er 6,8% aukning á nýskráningum samanborið við apríl á síðasta ári. Meira en helmingur nýskráninga í mánuðinum voru bílaleigubílar.
*Tölur fyrir apríl
Sé litið til nýskráningar fólksbíla það sem af er ári námu þær samanlagt 3.727 sem er 35,6% aukning frá sama tímabili í fyrra.
*Tölur eru fyrir janúar-apríl
Það sem af er ári hefur Kia verið mest skráða tegundin með 677 nýskráða fólksbíla, sem samsvarar 18% af öllum nýskráðum fólksbílum. Toyota var með næst flestar nýskráningar með 455 nýskráða fólksbíla og 12% hlutdeild. Þar á eftir kom Tesla með 398 nýskráningar fólksbíla og 11% hlutdeild.
Rafmagn var vinsælasti orkugjafinn og hafa verið nýskráðir 1.289 rafmagnsbílar það sem af er ári. Það þýðir að 1 af hverjum 3 nýskráðum fólksbílum var rafmagnsbíll. Næst á eftir koma tengiltvinnbílar en samtals hafa verið nýskráðir 866 slíkir fólksbílar það sem af er ári sem nemur 23% af nýskráðum fólksbílum.
*Tölur eru fyrir janúar-apríl
Einstaklingar hafa verið skráðir fyrir alls 1.533 nýjum fólksbílum það sem af er ári og jukust nýskráningar um 59% milli ára.
*Tölur eru fyrir janúar-apríl
Meira en helmingur þessara bíla voru rafmagnsbílar eða 59%. Hlutfallið hefur aukist frá síðasta ári og er orðið svipað og á sama tímabili 2022-2023 þegar nýskráningar rafmagnsbíla voru sem mestar. Tengiltvinnbílar voru næst algengastir með 22% hlutdeild. Samanlögð hlutdeild rafmagns- og tengiltvinnbíla nam 81% af nýskráningum einstaklinga.
*Tölur eru fyrir janúar-apríl
Almenn fyrirtæki (að undanskildum ökutækjaleigum) hafa nýskráð 429 fólksbíla það sem af er ári. Það er 11,4% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra. Rafmagn var algengasti orkugjafinn hjá almennum fyrirtækjum, með 53% hlutdeild.
*Tölur eru fyrir janúar-apríl
Ökutækjaleigur hafa nýskráð flesta fólksbíla það sem af er ári eða samanlagt 1.764 nýja fólksbíla. Það þýðir að næstum helmingur allra nýskráðra fólksbíla voru bílaleigubílar. Hybrid bílar voru algengastir með 36% hlutdeild af nýskráðum bílaleigubílum og rafmagnsbílar voru óalgengastir með 8,5% hlutdeild.
*Tölur eru fyrir janúar-apríl