Fara í efni

Nýskráðir fólksbílar í ágúst 2026

Fréttir

Í lok ágúst var búið að nýskrá 9.343 nýja fólksbíla það sem af er ári. Það er 4,9% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Þrátt fyrir fækkun milli ára eru nýskráningar fleiri en á sama tímabili árin 2020, 2021 og 2024.

*janúar-ágúst

Rafmagn er algengasti orkugjafi nýskráðra fólksbíla og nálægt því helmingur allra nýskráninga. Þar á eftir koma tvinnbílar (e. hybrid) og síðan tengiltvinnbílar (e. PHEV). Nýskráningar hefðbundinna bensín- og dísilfólksbíla halda áfram að vera á undanhaldi og er samanlögð hlutdeild þeirra innan við 12% af nýskráningum.

*janúar-ágúst

Líkt og áður hefur verið fjallað um í umfjöllun Bílgreinasambandsins um nýskráningar þá voru gerðar umfangsmiklar breytingar á vörugjöldum á ökutæki um síðustu áramót. Í aðdraganda breytinganna var óvenjumikill fjöldi fólksbíla fluttur til landsins áður en nýju gjöldin tóku gildi. Við það mynduðust töluverðar birgðir af óskráðum bílum sem voru síðan nýskráðir þegar leið á yfirstandandi ár.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur munurinn á innflutningi og nýskráningum fólksbíla minnkað jafnt og þétt undanfarna mánuði. Það bendir til þess að stærstur hluti þeirra fólksbíla sem fluttur var til landsins undir lok síðasta árs hafi nú þegar verið nýskráður og að nýskráningar héðan í frá ættu því að endurspegla betur þann fjölda bíla sem fluttur er til landsins.

Heimild: Hagstofa Íslands og Samgöngustofa

Ökutækjaleigur með flestar nýskráningar

Sé litið til nýskráninga eftir kaupendahópum eru ökutækjaleigur umfangsmesti hópurinn. Þær hafa nýskráð samanlagt 4.725 nýja fólksbíla það sem af er ári sem um helmingur allra nýskráninga. Nýskráningar eru færri en á síðasta ári og er samdrátturinn milli ára um 10%.

*janúar-ágúst

Tvinnbílar eru algengastir meðal nýskráðra bílaleigubíla og eru um 37% þeirra. Þar á eftir koma tengiltvinnbílar með 30% hlutdeild. Það vekur athygli að hlutdeild rafmagnsbíla hjá bílaleigum hefur verið að aukast samanborið við síðastliðin tvö ár og er um 15%.

Hafa ber í huga að hlutdeild rafbíla af nýskráningu bílaleiga var afar lág fyrir ekki svo mörgum árum síðan. Hlutdeild sem nemur 15% er veruleg í samanburðinum. Mögulega má líta svo á að innkaup bílaleiga m.t.t. orkugjafa séu tekin að breytast í kjölfar vörugjaldabreytinga um síðustu áramót og aukna ásókn almennings í rafbíla.

*janúar-ágúst

 

Rafbílar yfir 80% af nýskráningum einstaklinga

Einstaklingar hafa nýskráð samanlagt 3.422 nýja fólksbíla það sem af er ári. Það er tæplega 2% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra.

*janúar-ágúst

Rafmagnsbílar eru yfir 80% af nýskráningum einstaklinga og hefur hlutdeild þeirra aldrei verið hærri. Tengiltvinnbílar eru næstalgengastir með 9% hlutdeild. Hlutdeild þeirra hefur minnkað milli ára en hún hefur verið um 20% undanfarin tvö ár.

*janúar-ágúst

 

Rafmagnsbílar einnig ráðandi hjá fyrirtækjum

Fyrirtæki, önnur en ökutækjaleigur, hafa nýskráð samanlagt 1.195 nýja fólksbíla það sem af er ári. Þetta er eini kaupendahópurinn þar sem nýskráningum hefur fjölgað frá sama tímabili á síðasta ár eða um tæplega 10%.

*janúar-ágúst

Rafmagnsbílar eru í miklum meirihluta eða um 70% nýskráninga og hefur hlutdeild þeirra aldrei verið hærri hjá kaupendahópnum. Þar á eftir koma tengiltvinnbílar með 14% hlutdeild í nýskráningum sem er lægri hlutdeild en undanfarin tvö ár þegar hún var yfir 20%.

*janúar-ágúst

 

Kia algengasta tegundin

Kia er algengasta nýskráða tegundin það sem af er ári, með 1.222 nýja fólksbíla og 13,1% hlutdeild. Toyota kemur þar á eftir með 1.091 nýja fólksbíla og 11,7% hlutdeild og síðan Tesla með 841 nýja fólksbíla og 9% hlutdeild.