Fara í efni

Nýskráðir fólksbílar febrúar 2025

Fréttir

Alls voru nýskráðir 655 nýir fólksbílar í febrúar. Það er 65% aukning frá febrúar á síðasta ári.

A graph with numbers and a chart

AI-generated content may be incorrect.

*Tölur eru fyrir febrúar

Nýskráningar fólksbíla jukust töluvert á fyrstu tveimur mánuðum ársins samanborið við sama tímabili í fyrra eða um 46,5%. Samtals hafa verið skráðir 1.251 nýir fólksbílar það sem af er ári.

A graph with numbers and red circles

AI-generated content may be incorrect.

*Tölur eru fyrir janúar-febrúar

Kia var mest skráða tegundin á fyrstu tveimur mánuðum ársins með 192 nýskráða fólksbíla, sem samsvarar 15% af öllum nýskráðum fólksbílum. Toyota var með næst flestar nýskráningar með 172 nýskráða fólksbíla og 14% hlutdeild. Þar á eftir kom Hyundai með 92 nýskráningar fólksbíla og 7% hlutdeild.

Flestir nýskráðir fólksbílar voru rafmagnsbílar eða 474 bílar. Það jafngildir 38% hlutdeild af nýskráðum fólksbílum á fyrstu tveimur mánuðum ársins sem er aukning frá sama tímabil í fyrra þegar þeir voru með 31% hlutdeild. Næst á eftir komu tengiltvinnbílar en samtals voru nýskráðir 292 slíkir fólksbílar í janúar og febrúar sem er um 23% af nýskráðum fólksbílum.

A graph of numbers and percentages

AI-generated content may be incorrect.

*Tölur eru fyrir janúar-febrúar

Einstaklingar voru skráðir fyrir flestum nýjum fólksbílum í janúar og febrúar. Alls voru nýskráð 626 fólksbílar á einstaklinga sem er 32,6% aukning milli ára.

A graph with numbers and circles

AI-generated content may be incorrect.

*Tölur eru fyrir janúar-febrúar

Meira en helmingur þessara bíla voru rafmagnsbílar eða 54%. Næst algengastir voru tengiltvinnbílar með 23% hlutdeild. Sá orkugjafi sem var með fæstar nýskráningar hjá einstaklingum, eða 2% hlutdeild, var bensín.

A graph of numbers and colors

AI-generated content may be incorrect.

*Tölur eru fyrir janúar-febrúar

Almenn fyrirtæki (að undanskildum ökutækjaleigum) nýskráðu 185 fólksbíla á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Það er 10,1% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra. Algengasti orkugjafinn hjá almennum fyrirtækjum, með tæplega 50% hlutdeild, var rafmagn.

A graph with numbers and a bar chart

AI-generated content may be incorrect.

*Tölur eru fyrir janúar-febrúar

Ökutækjaleigur skráðu 440 nýja fólksbíla það sem af er ári sem er meira en tvöföldun frá sama tímabili í fyrra. Miðað við þetta var 1 af hverjum 3 nýskráðum fólksbílum í janúar og febrúar bílaleigubíll.

A graph with numbers and a bar chart

AI-generated content may be incorrect.

*Tölur eru fyrir janúar-febrúar