Fara í efni

Nýr Mercedes-Benz GLE frumsýndur

Fréttir

Nýr og glæsilegur Mercedes-Benz GLE verður frumsýndur hjá Bílaumboðinu Öskju að Krókhálsi 11 nk. laugardag, 18. maí klukkan 12-16.

Þessi vinsæli jeppi hefur nú verið endurhannaður bæði að utan sem innan og er nú orðinn enn tæknivæddari, stærri og glæsilegri. Nýr GLE er lengri og breiðari en áður og farangursrýmið er enn stærra. GLE er fáanlegur í sjö sæta útgáfu.

Innanrými GLE er sérlega vandað en þar sameinast hámarks þægindi og tæknilegir eiginleikar. Jeppinn er búinn sérlega góðum sætum og státar af mjög góðu plássi fyrir ökumann og farþega. Efnisval er fyrsta flokks eins og vaninn er hjá Mercedes-Benz. Nýr breiðskjár, raddstýrt MBUX margmiðlunarkerfi og stafrænn snertiskjár tryggja þægilegan akstur og góða afþreyingu fyrir þá sem vilja. Jeppinn er búinn Hey Mercedes raddstýringarkerfinu sem kom fyrst í A-Class á síðasta ári.

GLE er með nýjum undirvagni og fjöðrunin hefur verið bætt enn frekar. GLE kemur að sjálfsögðu með hinu rómaða 4MATIC fjórhjóladrifi frá Mercedes-Benz. Aksturseiginleikar GLE eru afar góðir og er jeppinn mjög vel búinn nýjustu öryggiskerfum frá Mercedes-Benz.

GLE er fáanlegur með dísil- og bensínvélum. Þannig er GLE 300d, sem hefur verið ein vinsælasta útgáfa GLE, með þriggja lítra dísilvél sem skilar 245 hestöflum og dráttargetan er upp á 3 tonn. Eyðsla jeppans er 6,4 lítrar á hundraðið samkvæmt WLTP staðli en jeppinn er væntanlegur með tengiltvinnvél með allt að 100 km drægni.