Fara í efni

Nýr, kraftmeiri og langdrægari Renault ZOE kynntur hjá BL

Fréttir

BL við Sævarhöfða frumsýnir uppfærða, kraftmeiri og langdrægari útgáfu af hinum vinsæla rafbíl Renault ZOE, sem jafnan er einn mest seldi rafbíllinn í Evrópu auk þess að hafa 5 ár í röð verið kosinn sá besti í sínum verðflokki hjá What Car?

Breytt útlit

Að utan eru ný og C-laga LED aðal-, dag- og þokuljós og nýir aðdráttarhliðarspeglar með innbyggðum stefnuljósum auk þess sem nýr framendi hefur fengið hið einkennandi útlit Reanult. Að aftan eru LED ljós. Velja má um alls níu liti á ZOE og fjórar mismunandi 15“, 16“ og 17“ álfelgur.

Ný efni, meiri tækni og afþreying

Í farþegarými er allt yfirbragð sportlegra og nútímalegra. Innréttingin er öll úr 100% endurvinnanlegum efnum sem hefur í för með sér 60% minni losun Co2 á hverja 8 fermetra efnis. Allur frágangur er vandaðri en áður þar sem vefnaðarvaran gegnir stóru hlutverki og hefur í för með sér aukna hljóðvist fyrir ökumann og farþega. Komið er nýtt stillanlegt og upphitanlegt fjölaðgerðastýri og 10“ digital mælaborð með mjúku endurunnu áklæði auk 9,3“ Easy Link navigation snertiskjás sem eykur þægindi og aðgang að afþreyingu.

Meira afl og öryggisbúnaður

Hvað varðar afl og afköst þá hefur ZOE fengið nýjan og kraftmeiri mótor sem skilar um 136 hestöflum og 245Nm togi. ZOE býður akstursaðstoð með virkri neyðarhemlun, blindhornsviðvörun, lestur umferðarskilta, akgreinastýringu, sjálfvirkri skiptingu aðalljósageisla, aðstoð við stæðislögn og fleira.

Lengri drægni og skjótari hleðsla

Nýr ZOE hefur einnig fengið orkumeiri 52 kWh rafhlöðu sem við góðar aðstæður getur skilað bílnum allt að 395 km (WLTP) vegalengd á hleðslunni. Nú er hægt að hlaða ZOE á 50 kw hraðhleðslustöðvunum (DC) sem um þessar mundir fjölgar jafnt og þétt hringinn í kringum landið. Á hraðhleðslustöðvunum má fullhlaða ZOE á um það bil einni klukkustund eða upp að 80% á rúmum 70 mínútum. Eins og verið hefur fylgir ZOE 22kw AC hleðslusnúra sem fyrst og fremst er ætluð til skammtímahleðslu um venjulega heimilisinnstungu.

Verð frá 3.990.000 kr.

Renault ZOE er í boði í fjórum verðflokkum; Life, Zen, Intens og Edition One (Bose). Nýr Renault Zoe kostar frá. 3.990.000 kr.