Kia Niro er nýr bíll frá suður-kóreska bílaframleiðandanum sem frumsýndur verður hjá Bílaumboðinu Öskju nk. laugardag, 10. september kl. 12-16. Kia Niro er Hybrid Crossover sem fengið hefur mjög góða dóma erlendis fyrir fallega hönnun og góða aksturseiginleika. Bíllinn er með straumlínulöguðum, skörpum og nútímalegum formlínum. Að framan er Niro með ættarmerki Kia sem er Tiger nose grillið. Innanrýmið er vel hannað og rúmgott þar sem m.a. er að finna hágljáandi lista, tau/leðursæti í bland og mikið farangursrými.
Kia Niro er búinn Hybrid tækninni, knúinn rafmótor og 1,6 lítra bensínvél sem skilar samtals 141 hestafli. Hybrid tæknin stuðlar að enn lægri losun CO2. Þá er bíllinn fremstur í flokki minni Hybrid bíla hvað varðar sparneytni. Kia Niro sigraði sinn flokk í sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu á dögunum. Eyðslan var aðeins 5,2 lítrar á hundraðið í akstri frá Reykjavík til Akureyrar. Munur á eyðslu í langkeyrslu og bæjarakstri er sáralítill svo í innanbæjarakstri eyðir hann litlu meira.
Kia Niro er vel búinn öllum nýjustu tækni og er ma. með akreinavara, íslensku leiðsögukerfi og margt fleira. Kia Niro er skemmtileg samsetning á Sportswagon bíl og jeppling. Há seta farþega gerir alla umgengi um bílinn mjög þægilega og útsýni úr bílnum er mjög gott. Nýr Kia Niro er með 7 ára ábyrgð eins og allir nýir Kia bílar sem er lengsta ábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp á í heiminum.