Fara í efni

Nýr Kia e-Soul frumsýndur í LA

Fréttir

Nýr Kia e-Soul frumsýndur í LA

Nýr Kia e-Soul rafbíll verður frumsýndur á Bílasýningunni í Los Angeles síðar í mánuðinum. Ný kynslóð e-Soul verður talsvert breytt í hönnun sem og aksturseiginleikum frá núverandi rafbíl Soul EV.

Spenna ríkir fyrir komu bílsins en einungis ein mynd hefur verið birt opinberlega af honum enn sem komið er en Kia mun láta meiri upplýsingar í té þegar hulunni verður svipt af bílnum í LA. Kia segir að hönnun nýja bílsins sé nútímaleg og djörf og verður bíllinn mjög vel búinn helsta tækni- og öryggisbúnaði frá Kia. Suður-kóreski bílaframleiðandinn hefur einnig bætt aksturseiginleika bílsins enn frekar. Nýr e-Soul er 100% rafbíll og hefur því engan útblástur.

Kia Soul EV hefur notið mikilla vinsælda síðan hann kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir fjórum árum. Ekki er búist við öðru en að arftaki hans e-Soul verði einnig vinsæll. Eins og forverinn verður e-Soul nettur fjölnotabíll og er hábyggðari en fólksbílar af svipaðri stærð sem þýðir að auðvelt er að stíga inn og út úr honum auk þess sem sætin eru há og útsýni gott.

Kia er einnig að kynna e-Niro til leiks sem einnig verður 100% rafbíll og nýjasta úrfærslan af hinum vinsæla Kia Niro. Það er því mikið að gerast hjá Kia í rafbílavæðingunni og augljóslega spennandi tímar framundan hjá suður-kóreska bílaframleiðandanum.